AlbaníaAusturríkiBandaríkinBelgíaBólivíaBosnía/HerzegovinaBrasilíaBretlandDanmörkEistlandEkvadorFilippseyjarFinnlandFrakklandGanaGrikklandHollandHondúrasIndlandIndónesíaÍrlandÍslandÍtalíaJapanKenýaKólumbíaKosta RíkaKróatíaKýpurLettlandLiechtensteinLitháenLúxemborgMakedóníaMaltaMarokkóMexíkóMósambíkNepalNígeríaNoregurNýja SjálandPerúPóllandPortúgalRúmeníaRússlandSerbíaSlóvakíaSlóveníaSpánnSuður AfríkaSuður KóreaSvartfjallalandSvissSvíþjóðTaívanTansaníaTékklandTyrklandÚgandaUpplýsingar AUSVíetnamÞýskaland

Aus býður upp á 3 leiðir..

2-16 vikur
ICYE styttri verkefni

6 eða 12 mánuðir
ICYE lengri verkefni

4-12 mánuðir
í Evrópu - EVS

  • Upplýsingar
  • Verkefni í boði
  • Þátttökugjald
  • Umsóknarferlið
  • Lönd í boði

2-16 vikur ICYE styttri verkefni

Upplýsingar

Verkefni sem eru í 2-16 vikur eru styttri verkefni, svokölluð ICYE STEPS verkefni.

Þar getur þú valið hvenær þú vilt fara og hve margar vikur þú vilt vera í verkefninu, hægt er að leggja af stað hvenær sem er yfir árið.

Verkefnin eru skipulögð af systrasamtökum okkar innan AUS/ICYE heimsins sem hafa margra ára reynslu við að skipuleggja slík verkefni.

Margir dvelja eitthvað lengur eftir að verkefninu lýkur, ferðast meira um landið eða til nálægra landa, slappa af á fallegri strönd, klifra fjöll, berjast í gegnum regnskóga, fara í safarí, taka þátt í menningarhátíðum eða gera eitthvað allt annað. Einnig er mögulegt að leggja af stað áður en verkefnið hefst og kynnast landinu nánar. Oft er hægt að taka tungumálanámskeið samhliða sjálfboðastarfinu.

  • Upplýsingar
  • Verkefni í boði
  • Þátttökugjald
  • Umsóknarferlið
  • Lönd í boði

6 eða 12 mánuðir ICYE lengri verkefni

Upplýsingar

Ýmis verkefni eru í boði ef þig langar að gerast sjálfboðaliði í lengri tíma þ.e í 6 eða 12 mánuði.

Brottför eru tvisvar á ári, það er á tímabilinu ágúst/september og janúar/febrúar ár hvert.

Margir velja þessa leið til að ná betri tenginu við landið, verkefnið og fólkið. Sjálfboðaliðarnir fara allir á svokallað brottfararnámskeið fyrir brottför, þar eru þeir eru upplýstir um það sem koma skal á næstu mánuðum og eins til að þjappa íslensku sjálfboðaliðunum saman. Oft eru sjálfboðaliðar að fara á svipaða staði og geta þá fengið stuðning frá hvorum öðrum og gert eitthvað skemmtilegt saman. Sjálfboðaliðarnir koma hvaðan æva að í heiminum og oft myndast vinskapur milli sjálfboðaliðanna sem gerir það að þeir t.d. ferðast saman í fríunum sínum. Þegar við sendum sjálfboðaliða í ICYE verkefni þá erum við alltaf að senda til systrasamtaka okkar innan ICYE heimsins sem hafa margra ára reynslu af því að skipuleggja slík verkefni.


  • Upplýsingar
  • Verkefni í boði
  • Þátttökugjald
  • Umsóknarferlið
  • Umsóknarfrestir
  • Lönd í boði

4-12 mánuðir í Evrópu - EVS

Upplýsingar

AUS tekur þátt styrkjaáætlun á vegum Evrópusambandsins sem kallast Evrópa unga fólksins (EUF) eða Youth in Action Programme. Vegna þess er hægt að bjóða upp á nánast ókeypis ferð hvert sem er innan Evrópu.

Um er að ræða svoköllað EVS-verkefni sem er stytting á European Voluntary Service, einum anga EUF.

Hér er hægt að skoða gagnagrunn EVS, þar geti þið valið hvaða land ykkur langar til og valið SUBMIT QUERY.


Styrkur

Sjálfboðaliðinn þarf nánast ekki að leggja fram neinn kostnað til að taka þátt í verkefninu, húsnæði, matur, vasapeningur, tungumálanámskeið og 90-100% af ferðakostnaðinum er allt innifalið. Sjálfboðaliðinn gæti þurft að leggja 10% fram af ferðakostnaði sem er þá ca. 5-10.000 kr, eftir því hvert förinni er heitið.

Sjálfboðaliðaverkefnin eru í 4 til 12 mánuði (flest verkefni eru í 6, 9 eða 12 mánuði) og hefjast á ýmsum tímum ársins.

Mjög auðvelt er fyrir íslendinga að ferðast innan Evrópu þar sem við erum hluti af Schengensamninginum, því er vinsælt fyrir sjálfboðaliða að ferðast um landið eða til nálægra landa í fríinu sínu eða fyrir eða eftir dvölina. Hægt er að slappa af á fallegri strönd, klífa fjöll, taka þátt í menningarhátíðum eða skoða sig um á bakpokaferðalagi svo fátt sé nefnt.

Búsetuhættir

Þrír möguleikar eru á búsetuformi meðan á sjálfboðaliðastarfinu stendur og allir hafa þeir sína kosti og galla. Sjálfboðaliðinn getur sett fram óskir um hvort hann vill búa hjá fósturfjölskyldu, í verkefninu sjálfu eða með öðrum sjálfboðaliðum. Oft fylgjast þó verkefni og búsetuform að, sum verkefni bjóða upp á fósturfjölskyldu meðan önnur hýsa sjálfboðaliðann sjálf. Það er því mikilvægt að skoða lýsingu verkefnisins vel og ef búsetuformið er mikilvægt fyrir sjálfboðaliðann að velja þá t.d. verkefni með tilliti til þess.


Fósturfjölskylda: Að búa hjá fósturfjölskyldu gefur sjálfboðaliðanum einstakt tækifæri til að kynnast menningu dvalarlandsins með öðrum augum, fá boð í veislur og mynda tengsl sem munu jafnvel vara að eilífu. Ekki má gleyma að þeir sem búa hjá fósturfjölskyldu ná yfirleitt bestu tökunum á tungumálinu. Sjálfboðaliðinn verður eins og einn af fjölskyldunni og á að hlýta sömu reglum og aðrir innan fjölskyldunnar. Vissulega getur þetta reynt á sjálfboðaliðann og einhverjir árekstrar orðið enda menning hans og fjölskyldunnar oft gjörólík. Samtökin í dvalarlandinu fara yfir algeng vandamál sem koma upp og þær óskrifuðu reglur sem gilda í landinu. Yfirleitt er virðing lykillinn að því að allt gangi snuðrulaust fyrir sig.


Í verkefninu: Sumir sjálfboðaliðar búa í verkefninu sjálfu, einir en þó oftast ásamt öðrum sjálfboðaliðum. Skilgreining á frítíma og vinnutíma er vel skilgreind en sjálfboðaliðinn þarf þó alltaf að hafa reglur verkefnins að leiðarljósi. Yfirleitt eru þessi verkefni heimili þeirra sem leita þangað svo líklegt er að sjálfboðaliðinn fái menninguna beint í æð í gegnum íbúana s.s. með því að taka þátt í einhverjum hátíðisdögum. Oft eru þessi verkefni með þeim mest krefjandi.


Með öðrum sjálfboðaliðum: Algengt er að systursamtök AUS í dvlarlandinu eða verkefnið sjálft útvegi húsnæði fyrir sjálfboðaliðann fjarri verkefninu. Yfirleitt er þetta húsnæði þar sem nokkrir erlendir sjálfboðaliðar búa saman og oft myndast mikill vinskapur milli fólksins. Alltaf koma þó upp einhver samskiptavandamál, sumir hafa t.d. búið einir lengi en aðrir eru að flytja í fyrsta skipti út frá mömmu og pabba. Eðlilega eru sjálfboðaliðarnir sem búa á þennan hátt lengur að ná tungumálinu en  það er þó óhætt að segja að þeir fái mjög alþjóðlega reynslu, enda nokkurs konar ?kommúna? sjálfboðaliða frá öllum heimshornum.

 

2009 - 2012 © Alþjóðleg ungmennaskipti (AUS) | Hitt húsið, Pósthússtræti 3-5 | 101 Reykjavík

Sími 517 7008 | Fax 411 5501 | Netfang aus@aus.is

dofri