AlbaníaAusturríkiBandaríkinBelgíaBólivíaBosnía/HerzegovinaBrasilíaBretlandDanmörkEistlandEkvadorFilippseyjarFinnlandFrakklandGanaGrikklandHollandHondúrasIndlandIndónesíaÍrlandÍslandÍtalíaJapanKenýaKólumbíaKosta RíkaKróatíaKýpurLettlandLiechtensteinLitháenLúxemborgMakedóníaMaltaMarokkóMexíkóMósambíkNepalNígeríaNoregurNýja SjálandPerúPóllandPortúgalRúmeníaRússlandSerbíaSlóvakíaSlóveníaSpánnSuður AfríkaSuður KóreaSvartfjallalandSvissSvíþjóðTaívanTansaníaTékklandTyrklandÚgandaUpplýsingar AUSVíetnamÞýskaland

Aus býður upp á 3 leiðir..

2-16 vikur
ICYE styttri verkefni

6 eða 12 mánuðir
ICYE lengri verkefni

4-12 mánuðir
í Evrópu - EVS

  • Upplýsingar
  • Verkefni í boði
  • Þátttökugjald
  • Umsóknarferlið
  • Lönd í boði

2-16 vikur ICYE styttri verkefni

Upplýsingar

Verkefni sem eru í 2-16 vikur eru styttri verkefni, svokölluð ICYE STEPS verkefni.

Þar getur þú valið hvenær þú vilt fara og hve margar vikur þú vilt vera í verkefninu, hægt er að leggja af stað hvenær sem er yfir árið.

Verkefnin eru skipulögð af systrasamtökum okkar innan AUS/ICYE heimsins sem hafa margra ára reynslu við að skipuleggja slík verkefni.

Margir dvelja eitthvað lengur eftir að verkefninu lýkur, ferðast meira um landið eða til nálægra landa, slappa af á fallegri strönd, klifra fjöll, berjast í gegnum regnskóga, fara í safarí, taka þátt í menningarhátíðum eða gera eitthvað allt annað. Einnig er mögulegt að leggja af stað áður en verkefnið hefst og kynnast landinu nánar. Oft er hægt að taka tungumálanámskeið samhliða sjálfboðastarfinu.

  • Upplýsingar
  • Verkefni í boði
  • Þátttökugjald
  • Umsóknarferlið
  • Lönd í boði

6 eða 12 mánuðir ICYE lengri verkefni

Upplýsingar

Ýmis verkefni eru í boði ef þig langar að gerast sjálfboðaliði í lengri tíma þ.e í 6 eða 12 mánuði.

Brottför eru tvisvar á ári, það er á tímabilinu ágúst/september og janúar/febrúar ár hvert.

Margir velja þessa leið til að ná betri tenginu við landið, verkefnið og fólkið. Sjálfboðaliðarnir fara allir á svokallað brottfararnámskeið fyrir brottför, þar eru þeir eru upplýstir um það sem koma skal á næstu mánuðum og eins til að þjappa íslensku sjálfboðaliðunum saman. Oft eru sjálfboðaliðar að fara á svipaða staði og geta þá fengið stuðning frá hvorum öðrum og gert eitthvað skemmtilegt saman. Sjálfboðaliðarnir koma hvaðan æva að í heiminum og oft myndast vinskapur milli sjálfboðaliðanna sem gerir það að þeir t.d. ferðast saman í fríunum sínum. Þegar við sendum sjálfboðaliða í ICYE verkefni þá erum við alltaf að senda til systrasamtaka okkar innan ICYE heimsins sem hafa margra ára reynslu af því að skipuleggja slík verkefni.


  • Upplýsingar
  • Verkefni í boði
  • Þátttökugjald
  • Umsóknarferlið
  • Umsóknarfrestir
  • Lönd í boði

4-12 mánuðir í Evrópu - EVS

Upplýsingar

AUS tekur þátt styrkjaáætlun á vegum Evrópusambandsins sem kallast Evrópa unga fólksins (EUF) eða Youth in Action Programme. Vegna þess er hægt að bjóða upp á nánast ókeypis ferð hvert sem er innan Evrópu.

Um er að ræða svoköllað EVS-verkefni sem er stytting á European Voluntary Service, einum anga EUF.

Hér er hægt að skoða gagnagrunn EVS, þar geti þið valið hvaða land ykkur langar til og valið SUBMIT QUERY.


Styrkur

Sjálfboðaliðinn þarf nánast ekki að leggja fram neinn kostnað til að taka þátt í verkefninu, húsnæði, matur, vasapeningur, tungumálanámskeið og 90-100% af ferðakostnaðinum er allt innifalið. Sjálfboðaliðinn gæti þurft að leggja 10% fram af ferðakostnaði sem er þá ca. 5-10.000 kr, eftir því hvert förinni er heitið.

Sjálfboðaliðaverkefnin eru í 4 til 12 mánuði (flest verkefni eru í 6, 9 eða 12 mánuði) og hefjast á ýmsum tímum ársins.

Mjög auðvelt er fyrir íslendinga að ferðast innan Evrópu þar sem við erum hluti af Schengensamninginum, því er vinsælt fyrir sjálfboðaliða að ferðast um landið eða til nálægra landa í fríinu sínu eða fyrir eða eftir dvölina. Hægt er að slappa af á fallegri strönd, klífa fjöll, taka þátt í menningarhátíðum eða skoða sig um á bakpokaferðalagi svo fátt sé nefnt.

Fósturfjölskyldur

Með því að opna heimili sitt fyrir sjálfboðaliða erlendis frá gefst tækifæri til að kynnast menningu og samfélagi annarrar þjóðar, jafnvel annarar heimsálfu og á sama tíma hjálpa sjálfboðaliðanum að kynnast íslenskri menningu og tungu. Stundum læra gestgjafarnir tungumál sjálfboðliðans, líkt og hann lærir íslensku. Besta leiðin fyrir sjálfboðaliða til að kynnast íslensku samfélagi og tungu er að hafa fósturfjölskyldu. Oft myndast vinasamband sem verður alltaf til staðar.


Fyrstu dagana er flest allt nýtt fyrir sjálfboðaliðanum, hann oft þreyttur eftir ferðalag sitt og/eða nýkominn af móttökuráðstefnu AUS. Hann getur verið óöruggur vegna nýrra aðstæðna og tungumáls, um leið og hann er spenntur, forvitinn og jákvæður alveg eins og þið sem takið á móti honum.


Til að byrja með geta viðbrögðin verið margvísleg: sumir fá svolitla heimþrá og byrja á því að skrifa heim, aðrir lokast og segja ekki mikið í fyrstu eða sofa bara fyrstu dagana. Til að honum líði eins og heima hjá sér sem fyrst, er ágætt að sýna honum umhverfið ítarlega (húsið, hverfið, hvernig hann fer að til að nota strætisvagna ,?o.s.frv.) Einnig er gagnlegt að kynna strax fyrir honum umgengnisreglur þær sem gilda á heimilinu, því oft er það sem okkur þykir sjálfsagt ekki endilega sjálfsagt í öllum heiminum. Ennfremur er gott að nýi fjölskyldumeðlimurinn viti hvað hann má gera og hvað ekki og hvað er ætlast til af honum. Í hverri fjölskyldu geta komið upp vandamál, þó að það geti verið mjög flókið að tala um erfitt mál við einhvern sem talar ekki alveg íslensku, þá er samt nauðsynlegt að þið reynið fyrst að ræða málið við hann sjálfan, áður en þið leitið til okkar. Þannig ætlumst við líka til af honum að hann reyni fyrst að tala við ykkur áður en hann kemur til okkar.


Varla þarf að taka fram að allir eiga eins og hægt er að tala íslensku við sjálfboðaliðann. Tungumálið er lykillinn að íslensku samfélagi fyrir hann.


Sem þátttakendur í ungmennaskiptum ættu fóstufjölskyldur að stefna að því:

  • að vera tilbúnir að læra ýmislegt nýtt
  • að takast á við þarfir, vonir og hræðslu sjálfboðaliðans með virðingu. "Aðgát skal höfð í nærveru sálar".
  • að vera tilbúnir að aðlagast aðeins lífsháttum sjálfboðaliðans.
  • að reyna að skilja mismuninn á menningu og persónu þeirra og sjálfboðaliðans.
  • að gera sjálfboðaliðanum kleift að taka þátt í öllu því sem honum er gagnlegt til að uppfylla markmið verkefnis hans

Það sem fósturfjölskyldur ættu ekki að ætlast til er:

  • að sjálfboðaliðinn passi strax fullkomlega inn í samfélagið eða sætti sig skilyrðislaust við allar þeirra ákvarðanir.
  • að allir sjálfboðaliðar séu eins

Nánari upplýsingar hér. 
Umsókn fyrir fósturfjölskyldu 

 

2009 - 2012 © Alþjóðleg ungmennaskipti (AUS) | Hitt húsið, Pósthússtræti 3-5 | 101 Reykjavík

Sími 517 7008 | Fax 411 5501 | Netfang aus@aus.is

dofri