AlbaníaAusturríkiBandaríkinBelgíaBólivíaBosnía/HerzegovinaBrasilíaBretlandDanmörkEistlandEkvadorFilippseyjarFinnlandFrakklandGanaGrikklandHollandHondúrasIndlandIndónesíaÍrlandÍslandÍtalíaJapanKenýaKólumbíaKosta RíkaKróatíaKýpurLettlandLiechtensteinLitháenLúxemborgMakedóníaMaltaMarokkóMexíkóMósambíkNepalNígeríaNoregurNýja SjálandPerúPóllandPortúgalRúmeníaRússlandSerbíaSlóvakíaSlóveníaSpánnSuður AfríkaSuður KóreaSvartfjallalandSvissSvíþjóðTaívanTansaníaTékklandTyrklandÚgandaUpplýsingar AUSVíetnamÞýskaland

Aus býður upp á 3 leiðir..

2-16 vikur
ICYE styttri verkefni

6 eða 12 mánuðir
ICYE lengri verkefni

4-12 mánuðir
í Evrópu - EVS

  • Upplýsingar
  • Verkefni í boði
  • Þátttökugjald
  • Umsóknarferlið
  • Lönd í boði

2-16 vikur ICYE styttri verkefni

Upplýsingar

Verkefni sem eru í 2-16 vikur eru styttri verkefni, svokölluð ICYE STEPS verkefni.

Þar getur þú valið hvenær þú vilt fara og hve margar vikur þú vilt vera í verkefninu, hægt er að leggja af stað hvenær sem er yfir árið.

Verkefnin eru skipulögð af systrasamtökum okkar innan AUS/ICYE heimsins sem hafa margra ára reynslu við að skipuleggja slík verkefni.

Margir dvelja eitthvað lengur eftir að verkefninu lýkur, ferðast meira um landið eða til nálægra landa, slappa af á fallegri strönd, klifra fjöll, berjast í gegnum regnskóga, fara í safarí, taka þátt í menningarhátíðum eða gera eitthvað allt annað. Einnig er mögulegt að leggja af stað áður en verkefnið hefst og kynnast landinu nánar. Oft er hægt að taka tungumálanámskeið samhliða sjálfboðastarfinu.

  • Upplýsingar
  • Verkefni í boði
  • Þátttökugjald
  • Umsóknarferlið
  • Lönd í boði

6 eða 12 mánuðir ICYE lengri verkefni

Upplýsingar

Ýmis verkefni eru í boði ef þig langar að gerast sjálfboðaliði í lengri tíma þ.e í 6 eða 12 mánuði.

Brottför eru tvisvar á ári, það er á tímabilinu ágúst/september og janúar/febrúar ár hvert.

Margir velja þessa leið til að ná betri tenginu við landið, verkefnið og fólkið. Sjálfboðaliðarnir fara allir á svokallað brottfararnámskeið fyrir brottför, þar eru þeir eru upplýstir um það sem koma skal á næstu mánuðum og eins til að þjappa íslensku sjálfboðaliðunum saman. Oft eru sjálfboðaliðar að fara á svipaða staði og geta þá fengið stuðning frá hvorum öðrum og gert eitthvað skemmtilegt saman. Sjálfboðaliðarnir koma hvaðan æva að í heiminum og oft myndast vinskapur milli sjálfboðaliðanna sem gerir það að þeir t.d. ferðast saman í fríunum sínum. Þegar við sendum sjálfboðaliða í ICYE verkefni þá erum við alltaf að senda til systrasamtaka okkar innan ICYE heimsins sem hafa margra ára reynslu af því að skipuleggja slík verkefni.


  • Upplýsingar
  • Verkefni í boði
  • Þátttökugjald
  • Umsóknarferlið
  • Umsóknarfrestir
  • Lönd í boði

4-12 mánuðir í Evrópu - EVS

Upplýsingar

AUS tekur þátt styrkjaáætlun á vegum Evrópusambandsins sem kallast Evrópa unga fólksins (EUF) eða Youth in Action Programme. Vegna þess er hægt að bjóða upp á nánast ókeypis ferð hvert sem er innan Evrópu.

Um er að ræða svoköllað EVS-verkefni sem er stytting á European Voluntary Service, einum anga EUF.

Hér er hægt að skoða gagnagrunn EVS, þar geti þið valið hvaða land ykkur langar til og valið SUBMIT QUERY.


Styrkur

Sjálfboðaliðinn þarf nánast ekki að leggja fram neinn kostnað til að taka þátt í verkefninu, húsnæði, matur, vasapeningur, tungumálanámskeið og 90-100% af ferðakostnaðinum er allt innifalið. Sjálfboðaliðinn gæti þurft að leggja 10% fram af ferðakostnaði sem er þá ca. 5-10.000 kr, eftir því hvert förinni er heitið.

Sjálfboðaliðaverkefnin eru í 4 til 12 mánuði (flest verkefni eru í 6, 9 eða 12 mánuði) og hefjast á ýmsum tímum ársins.

Mjög auðvelt er fyrir íslendinga að ferðast innan Evrópu þar sem við erum hluti af Schengensamninginum, því er vinsælt fyrir sjálfboðaliða að ferðast um landið eða til nálægra landa í fríinu sínu eða fyrir eða eftir dvölina. Hægt er að slappa af á fallegri strönd, klífa fjöll, taka þátt í menningarhátíðum eða skoða sig um á bakpokaferðalagi svo fátt sé nefnt.

Viðtal við fyrrverandi sjálfboðaliða

Skrifað þann 10.04 2008
Flokkun: AUS fréttir, Gamlar fréttir

Síðasta þriðjudag, 8. apríl, var viðtal við Einar Geirsson, fyrrverandi sjálfobðaliða hjá AUS í Brasilíu. Fréttina má finna á mbl.is. Einar Geirsson útskrifaðist úr menntaskóla árið 2006 og ákvað að taka sér námsfrí í eitt ár áður en hann hæfi háskólaná m. ?Ég byrjaði á því að leita að tungumálaskólum í Brazilíu en þangað hafði mig alltaf langað að fara. Fyrir einhverja tilviljun rakst ég á vefsíðu AUS og var fljótur að sjá að þetta væri eitthvað fyrir mig,? segir Einar en hann hélt af stað til Brasilíu í ágúst árið 2006.   ?Ég fékk starf á frístundarheimili fyrir börn úr fátækari hluta borgarinnar. Krakkarnir komu til okkar eftir skóla en þau áttu flest við einhverja erfiðleika að stríða á heimilinu. Mörg þeirra voru börn einstæðra foreldra en önnur bjuggu hjá ömmu sinni og/eða afa....

Lesa meira..

Ný heimasíða AUS

Skrifað þann 01.04 2008
Flokkun: AUS fréttir, Gamlar fréttir

AUS hefur opnað nýja glæsilega heimasíðu. Við vonumst til að þjónusta betur áhugasama með þessum breytingum. Viðmót síðunnar er miklu einfaldara en áður, hægt er að bóka ferð beint í gegnum netið og á nýju síðunni eru fleiri og betri upplýsingar. Þetta er ekki aprílgabb, eins og sjá má. Hér til hliðar má sjá mynd af gömlu síðunni.

Lesa meira..

AUS-hittingur á Café Kultura

Skrifað þann 31.03 2008
Flokkun: AUS fréttir, Gamlar fréttir

Mánaðarlegi hittingur AUS verður næsta miðvikudag, 2. apríl, á Café Kulture Hverfisgötu 18. Hittingurinn hefst stundvíslega klukkan 20:00 og verður eitthvað fram eftir kvöldi. Á hverjum miðvikudegi verður síðan hittingur á Café Kulture þar sem fjölþjóðlegur AUS-hópur hittist og á góða stund saman. Allir AUS-arar og tengdir eru að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir.

Lesa meira..

Friður og fjölmenning á Menningarnótt?

Skrifað þann 27.03 2008
Flokkun: AUS fréttir, Gamlar fréttir

Allt útlit erfyrir að AUS-gjörningurinn ?Friður og fjölmenning? verði haldinn á menningarnótt laugardaginn 16. ágúst. Þetta verður þriðja tilraun þar sem að aflýsa þurfti í tvö fyrri skipti vegna veðurs, þ.e. á Vetrarhátíð 8. febrúar og í Viðey 20. mars, þegar að kveikt var á friðarsúlunni á Vorjafndægri. Gjörningurinn er byggður upp sem táknræn útfærsla undir yfirskriftinni ?Friður og fjölmenning?. Fjölþjóðlegur hópur sendir ljósahnetti upp í himinnin með ósk um frið og samtímis verður sjónrænn leikur að friðarkertum og stjörnuljósum. Myndina tók Finnur Þorgeirsson

Lesa meira..

Friður og fjölmenning í Viðey

Skrifað þann 19.03 2008
Flokkun: AUS fréttir, Gamlar fréttir

Í dag, miðvikudaginn 19.mars verður kveikt á listaverki Yoko Ono, Imagine Peace Tower í Viðey. Í eina viku verður friðarsúlan tendruð kl.21:00 og slökkt á miðnætti. Í tengslum við þessa friðarviku á vorjafndægri, standa alþjóðlegu sjálfboðaliðasamtökin AUS og Höfuðborgarstofa fyrir dagskrá í Viðey að kvöldi skírdags, 20. mars á vorjafndægri. Viðeyjarstofa verður opin og geta gestir fengið sér hressingu. Ljósmyndasýning á vegum ljosmyndakeppni.is verður opnuð í hesthúsinu í Viðey og einnig verður boðið upp á kennslu í næturljósmyndun með friðarsúluna sem viðfangsefni. Áður en friðarsúlan verður tendruð verða ljósahnettir sendir á loft, barnakór syngur lög frá ýmsum löndum og viðstöddum verða boðin stjörnuljós og friðarkerti. Ferðir til Viðeyjar verða farnar kl.19:00 og 20:00, frá Viðey...

Lesa meira..

Gleðilega páska!

Skrifað þann 19.03 2008
Flokkun: AUS fréttir, Gamlar fréttir

AUS óskar þér, sjálfboðaliðum, mentorum, stjórnarmönnum, félagsmönnum, samstarfsaðilum og velunnurum gleðilegra páska!

Lesa meira..

AUS þátttakandi í friðarathöfn í Viðey

Skrifað þann 13.03 2008
Flokkun: AUS fréttir, Gamlar fréttir

Næstkomandi fimmtudag, 20. mars, sem er jafnframt Skírdagur & Vorjafndægur, verður kveikt á Friðarsúlunni í Viðey. Við það tækifæri verður dagskrá í eynni og munu AUS, Viðey og Höfuðborgarstofa verða þar með sameiginlegt dagskráratriði. Yfirskrift atriðsins er ?Friður og fjölmenning ? og er hugmyndin að vekja máls á mikilvægi þess að réttur einstaklingsins í heiminum sé virtur. Nú er bara að taka daginn frá og setja stefnuna út í Viðey. Nánari upplýsingar um viðburðinn verða birtar síðar. Mynd og eftirfarandi texti um Friðarsúluna er af www.elding.is. [Þriðjudaginn 9. október 2007 tendraði Yoko Ono ljós á verkinu Imagine Peace Tower sem reist hefur verið í Viðey. Listaverkið er tileinkað minningu John Lennons sem hefði orðið 67 ára gamall þennan sama dag] Friðarsúlan í Viðey er...

Lesa meira..

Hittingur á Cafe Cultura

Skrifað þann 03.03 2008
Flokkun: AUS fréttir, Gamlar fréttir

Í stað þess að hittast á fyrsta miðvikudegi mars mánaðar, verður mánaðarlegur hittingur AUS næstkomandi fimmtudag, í Cafe Cultura. Mentorar, sjálfboðaliðar, bæði glæ-nýir og aðrir sem hafa verið á landinu lengur og aðrir AUSarar eru hjartanlega velkomnir! Hittingurinn hefst stundvíslega klukkan 20:00 og verður eitthvað fram að kvöldi.

Lesa meira..
Fyrri síða
Fyrsta síða
Síða 16 af 17
Næsta síða
Síðasta síða
 

2009 - 2012 © Alþjóðleg ungmennaskipti (AUS) | Hitt húsið, Pósthússtræti 3-5 | 101 Reykjavík

Sími 517 7008 | Fax 411 5501 | Netfang aus@aus.is

dofri