AlbaníaAusturríkiBandaríkinBelgíaBólivíaBosnía/HerzegovinaBrasilíaBretlandDanmörkEistlandEkvadorFilippseyjarFinnlandFrakklandGanaGrikklandHollandHondúrasIndlandIndónesíaÍrlandÍslandÍtalíaJapanKenýaKólumbíaKosta RíkaKróatíaKýpurLettlandLiechtensteinLitháenLúxemborgMakedóníaMaltaMarokkóMexíkóMósambíkNepalNígeríaNoregurNýja SjálandPerúPóllandPortúgalRúmeníaRússlandSerbíaSlóvakíaSlóveníaSpánnSuður AfríkaSuður KóreaSvartfjallalandSvissSvíþjóðTaívanTansaníaTékklandTyrklandÚgandaUpplýsingar AUSVíetnamÞýskaland

Aus býður upp á 3 leiðir..

2-16 vikur
ICYE styttri verkefni

6 eða 12 mánuðir
ICYE lengri verkefni

4-12 mánuðir
í Evrópu - EVS

  • Upplýsingar
  • Verkefni í boði
  • Þátttökugjald
  • Umsóknarferlið
  • Lönd í boði

2-16 vikur ICYE styttri verkefni

Upplýsingar

Verkefni sem eru í 2-16 vikur eru styttri verkefni, svokölluð ICYE STEPS verkefni.

Þar getur þú valið hvenær þú vilt fara og hve margar vikur þú vilt vera í verkefninu, hægt er að leggja af stað hvenær sem er yfir árið.

Verkefnin eru skipulögð af systrasamtökum okkar innan AUS/ICYE heimsins sem hafa margra ára reynslu við að skipuleggja slík verkefni.

Margir dvelja eitthvað lengur eftir að verkefninu lýkur, ferðast meira um landið eða til nálægra landa, slappa af á fallegri strönd, klifra fjöll, berjast í gegnum regnskóga, fara í safarí, taka þátt í menningarhátíðum eða gera eitthvað allt annað. Einnig er mögulegt að leggja af stað áður en verkefnið hefst og kynnast landinu nánar. Oft er hægt að taka tungumálanámskeið samhliða sjálfboðastarfinu.

  • Upplýsingar
  • Verkefni í boði
  • Þátttökugjald
  • Umsóknarferlið
  • Lönd í boði

6 eða 12 mánuðir ICYE lengri verkefni

Upplýsingar

Ýmis verkefni eru í boði ef þig langar að gerast sjálfboðaliði í lengri tíma þ.e í 6 eða 12 mánuði.

Brottför eru tvisvar á ári, það er á tímabilinu ágúst/september og janúar/febrúar ár hvert.

Margir velja þessa leið til að ná betri tenginu við landið, verkefnið og fólkið. Sjálfboðaliðarnir fara allir á svokallað brottfararnámskeið fyrir brottför, þar eru þeir eru upplýstir um það sem koma skal á næstu mánuðum og eins til að þjappa íslensku sjálfboðaliðunum saman. Oft eru sjálfboðaliðar að fara á svipaða staði og geta þá fengið stuðning frá hvorum öðrum og gert eitthvað skemmtilegt saman. Sjálfboðaliðarnir koma hvaðan æva að í heiminum og oft myndast vinskapur milli sjálfboðaliðanna sem gerir það að þeir t.d. ferðast saman í fríunum sínum. Þegar við sendum sjálfboðaliða í ICYE verkefni þá erum við alltaf að senda til systrasamtaka okkar innan ICYE heimsins sem hafa margra ára reynslu af því að skipuleggja slík verkefni.


  • Upplýsingar
  • Verkefni í boði
  • Þátttökugjald
  • Umsóknarferlið
  • Umsóknarfrestir
  • Lönd í boði

4-12 mánuðir í Evrópu - EVS

Upplýsingar

AUS tekur þátt styrkjaáætlun á vegum Evrópusambandsins sem kallast Evrópa unga fólksins (EUF) eða Youth in Action Programme. Vegna þess er hægt að bjóða upp á nánast ókeypis ferð hvert sem er innan Evrópu.

Um er að ræða svoköllað EVS-verkefni sem er stytting á European Voluntary Service, einum anga EUF.

Hér er hægt að skoða gagnagrunn EVS, þar geti þið valið hvaða land ykkur langar til og valið SUBMIT QUERY.


Styrkur

Sjálfboðaliðinn þarf nánast ekki að leggja fram neinn kostnað til að taka þátt í verkefninu, húsnæði, matur, vasapeningur, tungumálanámskeið og 90-100% af ferðakostnaðinum er allt innifalið. Sjálfboðaliðinn gæti þurft að leggja 10% fram af ferðakostnaði sem er þá ca. 5-10.000 kr, eftir því hvert förinni er heitið.

Sjálfboðaliðaverkefnin eru í 4 til 12 mánuði (flest verkefni eru í 6, 9 eða 12 mánuði) og hefjast á ýmsum tímum ársins.

Mjög auðvelt er fyrir íslendinga að ferðast innan Evrópu þar sem við erum hluti af Schengensamninginum, því er vinsælt fyrir sjálfboðaliða að ferðast um landið eða til nálægra landa í fríinu sínu eða fyrir eða eftir dvölina. Hægt er að slappa af á fallegri strönd, klífa fjöll, taka þátt í menningarhátíðum eða skoða sig um á bakpokaferðalagi svo fátt sé nefnt.

Spennandi sjálfboðaverkefni í Svíþjóð

Skrifað þann 30.01 2012
Flokkun: AUS fréttir

AUS-Alþjóðleg ungmennaskipti auglýsa laust pláss í sjálfboðaverkefni í Mullsjö í Svíþjóð. Verkefnið byrjar í ágúst 2012 og er í 12 mánuði. Um er að ræða EVS-verkefni sem þýðir að það er nánast frítt. Innifalið er gisting, tungumálanámsskeið, vasapeningur og 90% af ferðakostnaði. (oftast þarf sjálfboðaliðinn að greiða um 10% af ferðakostnaði)2009-SE-21 Mullsjö Folk High SchoolSjálfboðaliðinn vinnur í Mullsjö lýðháskólanum í Suður-Svíþjóð....

Lesa meira..

Tvö sjálfboðaverkefni í Pólandi

Skrifað þann 20.01 2012
Flokkun: AUS fréttir

AUS Alþjóðleg ungmennaksipti auglýsa laus pláss fyrir tvo íslenska sjálboðaliða í suðvestur Pólandi. Um er að ræða EVS verkefni þar sem nánast allt er frítt; gisting, tungumálanámsskeið, vasapeningur og ferðakostnaður, en oftastast þarf að greiða um 10% af ferðakostnaði. Þáttakendur í verkefnunum eru frá hinum ýmsu löndum t.d. Argentinu, Tyrklandi, Mexico, Austurríki, Rúmeníu og Indlandi. 2011-PL-283  Gimnazjum nr1 im. Adama Mickiewicza:Verkefnið byrjar 1. apríl og er í 9 mánuði. Það er staðsett í bæ sem heitir Klodzko...

Lesa meira..

Bessastaðaheimsókn Alþjóðlegra ungmennaskipta

Skrifað þann 17.01 2012
Flokkun: AUS fréttir

  Þriðjudaginn 9. janúar síðastliðin bauð forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson Alþjóðlegum ungmennaskiptum til Bessastaða. Um 25 manna hópur tók boði forsetans og skunduðu á Bessastaði. Í hópnum voru stjórn og framkvæmdastjóri AUS, 14 erlendir sjálfboðaliðar sem eru starfandi á Íslandi og íslenskir sjálfboðaliðar sem hafa starfað á erlendri grundu á vegum AUS. Forsetinn byrjaði á því að bjóða hópinn velkomin og hélt stutta tölu um forsetaembættið og Bessastaði. Hann gaf sér svo tíma...

Lesa meira..

Jólakveðja frá AUS

Skrifað þann 21.12 2011
Flokkun: AUS fréttir

AUS óskar öllum gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs!   Við þökkum kærlega fyrir árið sem er að líða og hlökkum til að hitta ykkur á nýju ári.   Jólakveðja frá Alþjóðlegum Ungmennaskiptum

Lesa meira..

Jólasöfnun Tinnu í Tanzaníu

Skrifað þann 15.12 2011
Flokkun: AUS fréttir

Tinna Sigurðardóttir, rúmlega tvítug stúlka úr Árbænum, er nú stödd í höfuðborg Tanzaníu, Dar es Saalam, þar sem hún starfar á munaðarleysingjaheimili á vegum AUS, Alþjóðlegra ungmennaskipta. Tinna segir sjálf að tækifæri barnanna séu nánast engin án menntunar og að hana þrái þau mjög heitt. Eftir vinnu hefur Tinna því reynt að kenna krökkunum ensku og þegar líða fór að jólum tók hún sig til ásamt danskri vinkonu sinni og ákvað að safna pening fyrir jólagjöfum til barnanna, sem...

Lesa meira..

Gefðu ævintýri í jólagjöf :)

Skrifað þann 09.12 2011
Flokkun: AUS fréttir

Bókin "Hvernig var? Alþjóðleg ungmennaskipti í 50 ár" er loksins komin í bókabúðir. Frábær gjöf sem getur verið upphafið á ævintýralegu ferðalagi :)Bókin er nú komin í sölu hjá Mál og Menning og hjá Iðu, en tökum fram að það er mun ódýrara að kaupa bókina á skrifstofu AUS, aðeins 1000 kr! Ef bókin svalar ekki ævintýraþörfinni hvernig væri þá að skella sér í ógleymanlega ferð með AUS og upplifa ævintýrið sjálf(ur)   :) Í bókinni má...

Lesa meira..

Laust starf hjá AUS

Skrifað þann 02.12 2011
Flokkun: AUS fréttir

    AUS, Alþjóðleg ungmennaskipti, leita að dugmiklum, skipulögðum og mjög sveigjanlegum einstaklingi í 100% skrifstofustarf frá og með 16. janúar nk. Starfið felst aðallega í móttöku sjálfboðaliða til Íslands, markaðssetningu félagsins og umsýsla umsókna.   Stúdentspróf, góð enskukunnátta, hæfni í mannlegum samskiptum, reynsla af skrifstofustörfum og aðgangur að bíl eru skilyrði.   Umsóknir berist á aus@aus.is fyrir 13. desember nk. Nánari upplýsingar gefur Kristín Björnsdóttir, framkvæmdastjóri AUS,...

Lesa meira..

Uganda á afslætti

Skrifað þann 11.11 2011
Flokkun: AUS fréttir

AUS býður Úganda á afslætti!! Þar sem AUS er með einn strák frá Uganda sem vinnur á heilsustofnuninni í Hveragerði höfum við ákveðið að bjóða einstakling til Uganda á afslætti en það á aðseins við um þá sem hugsa sér að vera í 6 eða 12 mánuði. Upphaflegt verð fyrir 6 mánuði 520.000 en nú  468.000 kr. Upphaflegt verð fyrir eitt ár 750.000 en nú 675.000 kr. Þórdís fór til Uganda í ágúst 2011 og ætlar að vera í hálft ár. Hún starfar í apóteki en...

Lesa meira..
Fyrri síða
Fyrsta síða
Síða 2 af 17
Næsta síða
Síðasta síða
 

2009 - 2012 © Alþjóðleg ungmennaskipti (AUS) | Hitt húsið, Pósthússtræti 3-5 | 101 Reykjavík

Sími 517 7008 | Fax 411 5501 | Netfang aus@aus.is

dofri