AlbaníaAusturríkiBandaríkinBelgíaBólivíaBosnía/HerzegovinaBrasilíaBretlandDanmörkEistlandEkvadorFilippseyjarFinnlandFrakklandGanaGrikklandHollandHondúrasIndlandIndónesíaÍrlandÍslandÍtalíaJapanKenýaKólumbíaKosta RíkaKróatíaKýpurLettlandLiechtensteinLitháenLúxemborgMakedóníaMaltaMarokkóMexíkóMósambíkNepalNígeríaNoregurNýja SjálandPerúPóllandPortúgalRúmeníaRússlandSerbíaSlóvakíaSlóveníaSpánnSuður AfríkaSuður KóreaSvartfjallalandSvissSvíþjóðTaívanTansaníaTékklandTyrklandÚgandaUpplýsingar AUSVíetnamÞýskaland

Aus býður upp á 3 leiðir..

2-16 vikur
ICYE styttri verkefni

6 eða 12 mánuðir
ICYE lengri verkefni

4-12 mánuðir
í Evrópu - EVS

  • Upplýsingar
  • Verkefni í boði
  • Þátttökugjald
  • Umsóknarferlið
  • Lönd í boði

2-16 vikur ICYE styttri verkefni

Upplýsingar

Verkefni sem eru í 2-16 vikur eru styttri verkefni, svokölluð ICYE STEPS verkefni.

Þar getur þú valið hvenær þú vilt fara og hve margar vikur þú vilt vera í verkefninu, hægt er að leggja af stað hvenær sem er yfir árið.

Verkefnin eru skipulögð af systrasamtökum okkar innan AUS/ICYE heimsins sem hafa margra ára reynslu við að skipuleggja slík verkefni.

Margir dvelja eitthvað lengur eftir að verkefninu lýkur, ferðast meira um landið eða til nálægra landa, slappa af á fallegri strönd, klifra fjöll, berjast í gegnum regnskóga, fara í safarí, taka þátt í menningarhátíðum eða gera eitthvað allt annað. Einnig er mögulegt að leggja af stað áður en verkefnið hefst og kynnast landinu nánar. Oft er hægt að taka tungumálanámskeið samhliða sjálfboðastarfinu.

  • Upplýsingar
  • Verkefni í boði
  • Þátttökugjald
  • Umsóknarferlið
  • Lönd í boði

6 eða 12 mánuðir ICYE lengri verkefni

Upplýsingar

Ýmis verkefni eru í boði ef þig langar að gerast sjálfboðaliði í lengri tíma þ.e í 6 eða 12 mánuði.

Brottför eru tvisvar á ári, það er á tímabilinu ágúst/september og janúar/febrúar ár hvert.

Margir velja þessa leið til að ná betri tenginu við landið, verkefnið og fólkið. Sjálfboðaliðarnir fara allir á svokallað brottfararnámskeið fyrir brottför, þar eru þeir eru upplýstir um það sem koma skal á næstu mánuðum og eins til að þjappa íslensku sjálfboðaliðunum saman. Oft eru sjálfboðaliðar að fara á svipaða staði og geta þá fengið stuðning frá hvorum öðrum og gert eitthvað skemmtilegt saman. Sjálfboðaliðarnir koma hvaðan æva að í heiminum og oft myndast vinskapur milli sjálfboðaliðanna sem gerir það að þeir t.d. ferðast saman í fríunum sínum. Þegar við sendum sjálfboðaliða í ICYE verkefni þá erum við alltaf að senda til systrasamtaka okkar innan ICYE heimsins sem hafa margra ára reynslu af því að skipuleggja slík verkefni.


  • Upplýsingar
  • Verkefni í boði
  • Þátttökugjald
  • Umsóknarferlið
  • Umsóknarfrestir
  • Lönd í boði

4-12 mánuðir í Evrópu - EVS

Upplýsingar

AUS tekur þátt styrkjaáætlun á vegum Evrópusambandsins sem kallast Evrópa unga fólksins (EUF) eða Youth in Action Programme. Vegna þess er hægt að bjóða upp á nánast ókeypis ferð hvert sem er innan Evrópu.

Um er að ræða svoköllað EVS-verkefni sem er stytting á European Voluntary Service, einum anga EUF.

Hér er hægt að skoða gagnagrunn EVS, þar geti þið valið hvaða land ykkur langar til og valið SUBMIT QUERY.


Styrkur

Sjálfboðaliðinn þarf nánast ekki að leggja fram neinn kostnað til að taka þátt í verkefninu, húsnæði, matur, vasapeningur, tungumálanámskeið og 90-100% af ferðakostnaðinum er allt innifalið. Sjálfboðaliðinn gæti þurft að leggja 10% fram af ferðakostnaði sem er þá ca. 5-10.000 kr, eftir því hvert förinni er heitið.

Sjálfboðaliðaverkefnin eru í 4 til 12 mánuði (flest verkefni eru í 6, 9 eða 12 mánuði) og hefjast á ýmsum tímum ársins.

Mjög auðvelt er fyrir íslendinga að ferðast innan Evrópu þar sem við erum hluti af Schengensamninginum, því er vinsælt fyrir sjálfboðaliða að ferðast um landið eða til nálægra landa í fríinu sínu eða fyrir eða eftir dvölina. Hægt er að slappa af á fallegri strönd, klífa fjöll, taka þátt í menningarhátíðum eða skoða sig um á bakpokaferðalagi svo fátt sé nefnt.

Saga AUS

Alþjóðleg ungmennaskipti (AUS) eru alþjóðleg sjálfboðaliða- og fræðslusamtök sem gefa ungu fólki möguleika á því að kynnast menningu og samfélagi annarra þjóða. Markmið AUS er að gefa ungu fólki tækifæri til ferðast til framandi landa og upplifa ólíka menningarheima í þeim tilgangi að auka þekkingu og skilning á ólíkri menningu og samfélögum og stuðla þannig að friði og skilningi milli einstaklinga og þjóða og vinna gegn fordómum og hleypidómum hvers konar. Þátttaka í verkefnum AUS stuðlar að þroska ungs fólks til að verða sjálfstæðir, virkir og ábyrgir einstaklingar í samfélaginu.

AUS hefur í tæplega 50 ár gefið ungum Íslendingum tækifæri á að vinna sem sjálfboðaliðar erlendis og hefur á sama tíma einnig tekið á móti erlendum sjálfboðaliðum og kynnt þá fyrir íslenskum siðum og menningu í gegnum leik og starf.

AUS eru frjáls félagasamtök sem rekin eru án hagnaðarsjónarmiða og af heimkomnum sjálfboðaliðum. AUS er aðili að Landssambandi æskulýðsfélaga (LÆF), regnhlífarsamtökum æskulýðsfélaga á Íslandi.


Upphaf ICYE er að rekja til ársins 1949 þegar ungmennaskipti hófust milli Þýskalands og Bandaríkjanna í kjölfar seinni heimstyrjaldarinnar. Markmiðið var að græða sár vegna styrjaldarinnar og stuðla að friði milli þjóðanna. Alþjóðaskrifstofa ICYE var opnuð árið 1966.

Alþjóðleg Ungmennaskipti (AUS) voru stofnuð árið 1961 og hafa starfað óslitið síðan. Á þeim árum sem liðin eru frá stofnun samtakanna hafa meira en 1000 sjálfboðaliðar farið út á okkar vegum og annar eins fjöldi komið hingað til lands.

 

Alþjóðasamtök ICYE:

AUS er meðlimur að Evrópusamtökum ICYE (ICYE European Association) og að Alþjóðasamtökum ICYE (ICYE Federation) sem eru starfandi í tæplega 50 löndum og í öllum heimsálfum. 

 Evrópusamtökin hafa ráðgefandi stöðu hjá Evrópuráði (Council of Europe), eru meðlimur að Samstarfsvettvangi evrópskra æskulýðsfélaga (European Youth Forum) og að Sambandi sjálfboðaliðasamtaka (Association of Voluntary Service Organisations, AVSO).

Alþjóðasamtökin hafa setu í ýmsum ráðum og ráðgefandi stöðu í nefndum hjá Sameinuðu Þjóðunum, UNESCO, Evrópuráði og Samráðsvettvangi Alþjóðlegra sjálfboðaliðasamtaka (CCIVS):

-United Nations Economic and Social Council - ECOSOC (Consultative Status)

-United Nations Department of Public Information, DPI-NGO Committee

-UNESCO (Official Operational Relations)

-UNESCO NGOs Liaison Committee

-European Commission, Directorate General Education and Culture - Youth Unit

-World Council of Churches (working relations as international ecumenical organisation)

-Co-ordinating Committee of International Voluntary Service (CCIVS)

Alþjóðasamtök ICYE fengu friðarverðlaun Sameinuðu þjóðanna árið 1987. 

 

2009 - 2012 © Alþjóðleg ungmennaskipti (AUS) | Hitt húsið, Pósthússtræti 3-5 | 101 Reykjavík

Sími 517 7008 | Fax 411 5501 | Netfang aus@aus.is

dofri