AlbaníaAusturríkiBandaríkinBelgíaBólivíaBosnía/HerzegovinaBrasilíaBretlandDanmörkEistlandEkvadorFilippseyjarFinnlandFrakklandGanaGrikklandHollandHondúrasIndlandIndónesíaÍrlandÍslandÍtalíaJapanKenýaKólumbíaKosta RíkaKróatíaKýpurLettlandLiechtensteinLitháenLúxemborgMakedóníaMaltaMarokkóMexíkóMósambíkNepalNígeríaNoregurNýja SjálandPerúPóllandPortúgalRúmeníaRússlandSerbíaSlóvakíaSlóveníaSpánnSuður AfríkaSuður KóreaSvartfjallalandSvissSvíþjóðTaívanTansaníaTékklandTyrklandÚgandaUpplýsingar AUSVíetnamÞýskaland

Aus býður upp á 3 leiðir..

2-16 vikur
ICYE styttri verkefni

6 eða 12 mánuðir
ICYE lengri verkefni

4-12 mánuðir
í Evrópu - EVS

  • Upplýsingar
  • Verkefni í boði
  • Þátttökugjald
  • Umsóknarferlið
  • Lönd í boði

2-16 vikur ICYE styttri verkefni

Upplýsingar

Verkefni sem eru í 2-16 vikur eru styttri verkefni, svokölluð ICYE STEPS verkefni.

Þar getur þú valið hvenær þú vilt fara og hve margar vikur þú vilt vera í verkefninu, hægt er að leggja af stað hvenær sem er yfir árið.

Verkefnin eru skipulögð af systrasamtökum okkar innan AUS/ICYE heimsins sem hafa margra ára reynslu við að skipuleggja slík verkefni.

Margir dvelja eitthvað lengur eftir að verkefninu lýkur, ferðast meira um landið eða til nálægra landa, slappa af á fallegri strönd, klifra fjöll, berjast í gegnum regnskóga, fara í safarí, taka þátt í menningarhátíðum eða gera eitthvað allt annað. Einnig er mögulegt að leggja af stað áður en verkefnið hefst og kynnast landinu nánar. Oft er hægt að taka tungumálanámskeið samhliða sjálfboðastarfinu.

  • Upplýsingar
  • Verkefni í boði
  • Þátttökugjald
  • Umsóknarferlið
  • Lönd í boði

6 eða 12 mánuðir ICYE lengri verkefni

Upplýsingar

Ýmis verkefni eru í boði ef þig langar að gerast sjálfboðaliði í lengri tíma þ.e í 6 eða 12 mánuði.

Brottför eru tvisvar á ári, það er á tímabilinu ágúst/september og janúar/febrúar ár hvert.

Margir velja þessa leið til að ná betri tenginu við landið, verkefnið og fólkið. Sjálfboðaliðarnir fara allir á svokallað brottfararnámskeið fyrir brottför, þar eru þeir eru upplýstir um það sem koma skal á næstu mánuðum og eins til að þjappa íslensku sjálfboðaliðunum saman. Oft eru sjálfboðaliðar að fara á svipaða staði og geta þá fengið stuðning frá hvorum öðrum og gert eitthvað skemmtilegt saman. Sjálfboðaliðarnir koma hvaðan æva að í heiminum og oft myndast vinskapur milli sjálfboðaliðanna sem gerir það að þeir t.d. ferðast saman í fríunum sínum. Þegar við sendum sjálfboðaliða í ICYE verkefni þá erum við alltaf að senda til systrasamtaka okkar innan ICYE heimsins sem hafa margra ára reynslu af því að skipuleggja slík verkefni.


  • Upplýsingar
  • Verkefni í boði
  • Þátttökugjald
  • Umsóknarferlið
  • Umsóknarfrestir
  • Lönd í boði

4-12 mánuðir í Evrópu - EVS

Upplýsingar

AUS tekur þátt styrkjaáætlun á vegum Evrópusambandsins sem kallast Evrópa unga fólksins (EUF) eða Youth in Action Programme. Vegna þess er hægt að bjóða upp á nánast ókeypis ferð hvert sem er innan Evrópu.

Um er að ræða svoköllað EVS-verkefni sem er stytting á European Voluntary Service, einum anga EUF.

Hér er hægt að skoða gagnagrunn EVS, þar geti þið valið hvaða land ykkur langar til og valið SUBMIT QUERY.


Styrkur

Sjálfboðaliðinn þarf nánast ekki að leggja fram neinn kostnað til að taka þátt í verkefninu, húsnæði, matur, vasapeningur, tungumálanámskeið og 90-100% af ferðakostnaðinum er allt innifalið. Sjálfboðaliðinn gæti þurft að leggja 10% fram af ferðakostnaði sem er þá ca. 5-10.000 kr, eftir því hvert förinni er heitið.

Sjálfboðaliðaverkefnin eru í 4 til 12 mánuði (flest verkefni eru í 6, 9 eða 12 mánuði) og hefjast á ýmsum tímum ársins.

Mjög auðvelt er fyrir íslendinga að ferðast innan Evrópu þar sem við erum hluti af Schengensamninginum, því er vinsælt fyrir sjálfboðaliða að ferðast um landið eða til nálægra landa í fríinu sínu eða fyrir eða eftir dvölina. Hægt er að slappa af á fallegri strönd, klífa fjöll, taka þátt í menningarhátíðum eða skoða sig um á bakpokaferðalagi svo fátt sé nefnt.

Sjálfboðaliðastarf

Sjálfboðaliðastarf:

Allir sem eru orðnir eldri en 18 ára geta farið með AUS. Ekki er gerð krafa um menntun eða starfsreynslu, aðeins áhugi á að leggja sitt á mörkum við að bæta heimin. Allir geta fundið verkefni við sitt hæfi því nóg er í boði, hægt er að velja verkefni frá 2 vikum upp í 12 mánuði. Sjálfboðaliðinn tekur beinan þátt í samfélaginu sem hann býr í með vinnuframlagi sínu.


Hvað fær sjálfboðaliðinn út úr þessu:
Þeir sem vinna sjálfboðastörf með AUS/ICYE hafa tækifæri til að kynnast menningu og samfélagi annarra þjóða og fólki frá öllum heiminum. Þeir öðlast persónulega reynslu sem er ómetanleg, læra oft nýtt tungumál og kynnast skoðunum og hugmyndum sem eru oftast ólíkar þeim sem við þekkjum úr íslensku samfélagi. Markmið margra er að kynnast betur sjálfum sér og öðlast sjálfstæði með því að búa að heiman um tíma. Fyrir aðra er löngunin til að hjálpa öðrum og vinna gegn fordómum meginhvatinn. Fyrir marga er þetta tími til að prófa nýja hluti áður en þeir snúa sér að námi og ævistarfi. En yfirleitt er það sambland af öllu framangreindu sem hvetur fólk til aðgerast sjálfboðaliðar. Sjálfboðaliðar gefa tíma sinn og vinnu til samfélagslegs verkefnis í skiptum fyrir tækifæri til að auka þroska sinn, reynslu og menntun.

 

Sjáldboðavinnan:
Sú sjálfboðavinna sem AUS býður er dæmi um óformlega menntun. Sjálfboðaliðar vinna að verkefnum sem stuðla að almannaheill og eru ekki rekin í hagnaðarskyni. Þjónustusviðið er afar breitt því verkefnin geta verið á sviði félagsmála, við umhverfis- og menningarmál, að málum tengdum friði eða félagslegu réttlæti, vinna með öldruðum eða fötluðum, eða með minnihlutahópum, heimilislausum eða flóttamönnum svo nokkur dæmi séu tekin. Sjálfboðaliðar eru ekki ódýrt vinnuafl heldur viðbót við það sem fyrir er. Þeir vinna störf sem oft væru ekki unnin, en hafa engu að síður mikið gildi. Sjálfboðaliðar eru ekki launþegar í þeim skilningi að þeir fái borguð laun fyrir sitt starf, en þeim er séð fyrir fæði og gistingu (eða fá jafngildikostnaðar í reiðufé), auk þess að fá vasapeninga. Flestir sjálfboðaliðar þurfa þó á meiri peningum að halda fyrir fatnaði, gjöfum og minjagripum, til að stunda sín áhugamál og fyrir hugsanleg ferðalög. Því er gott að hafa lagt fyrir á bankabók áður en lagt er af stað. Rétt er að taka það fram að sjálfboðavinnan er fullt starf en ekki hlutastarf, þótt það sé að sjálfsögðu tími til að stunda sín áhugamál og hitta sína vini.

 

2009 - 2012 © Alþjóðleg ungmennaskipti (AUS) | Hitt húsið, Pósthússtræti 3-5 | 101 Reykjavík

Sími 517 7008 | Fax 411 5501 | Netfang aus@aus.is

dofri