2-16 vikur ICYE styttri verkefni
Upplýsingar
Verkefni sem eru í 2-16 vikur eru styttri verkefni, svokölluð ICYE STEPS verkefni.
Þar getur þú valið hvenær þú vilt fara og hve margar vikur þú vilt vera í verkefninu, hægt er að leggja af stað hvenær sem er yfir árið.
Verkefnin eru skipulögð af systrasamtökum okkar innan AUS/ICYE heimsins sem hafa margra ára reynslu við að skipuleggja slík verkefni.
Margir dvelja eitthvað lengur eftir að verkefninu lýkur, ferðast meira um landið eða til nálægra landa, slappa af á fallegri strönd, klifra fjöll, berjast í gegnum regnskóga, fara í safarí, taka þátt í menningarhátíðum eða gera eitthvað allt annað. Einnig er mögulegt að leggja af stað áður en verkefnið hefst og kynnast landinu nánar. Oft er hægt að taka tungumálanámskeið samhliða sjálfboðastarfinu.
