Sjálfboðaliði á vegum AUS verður var við fræðslugildi samtakana á margan hátt. Stór hluti er hið daglega líf ungmennis á framandi slóðum, að þurfa að standa á eigin fótum og taka eigin ákvarðanir. Þannig hefur ungmennið tækifæri á því að læra nýja hluti á hverjum degi, um sjálfan sig og menningarheima annara þjóða, og kallast sú menntun óforlmeg (e.informal learning).
Að auki, í gegnum undirbúning, símat og lokamat þá heldur AUS ráðstefnur fyrir ungmennin (fyrir brottför, við komu, eftir hálfa dvöl, Í lok dvalar og eftir að heim er komið). Á ráðstefnunum er unnið mikilvægt starf til að undirbúa einstaklinga fyrir dvöl til lengri tíma , ýmis konar hagnýt atriði og upplýsingamiðlun– en einnig til að hefja upplifunina og allt það nýja sem að sjálfboðaliðarnir koma til með að ganga í gegnum. Teknir eru fyrir þættir eins og samskipti milli einstaklinga og hópa,samskipti í ólíkum menningarheimum, hópefli, skapa traust milli sjálfboðaliða, mentora og félagsins.
Ráðstefnurnar eru skipulagðar af starfsmönnum félagsins, og félagsmönnum með gildi óformlegrar menntunar til hliðsjónar þar sem að virk þátttaka er eitt af aðalatriðunum. Til að auka hæfni ungs fólks sem er virkt innan AUS eftir heimkomu býður félagið einnig upp á fjölda námskeiða um hin ýmsu málefni sem að við kemur starfi félagsins á alþjóðlega vísu auk námskeiða á erlendri grundu..
Hingað til hefur markhópur fræðslu AUS verið sjálfboðaliðar AUS – en með breyttu þjóðfélagi og mikilli breyttri samsetningu íslensks samfélags telur félagið að sú þekking sem að AUS hefur aflað í gegnum áratuga langa reynslu á fræðslu ungs fólks í menningarmálum eigi erindi víðar.
Þessi fræðslupakki er ætlaður til að leiðbeina þjálfara til að stunda fjölmenningarfræðslu ungs fólks á aldrinum 15-25 ára.
Hér má nálgast PDF skjal um fjölmenningafræðslu
Hér má nálgast glærukynningu um fjölmenningafræðslu
Hér má nálgast glærukynningu um menningarnám í gegnum AUS



