
Verkefnin í boði eru margvísleg s.s.:
-
náttúruverkefni eða verkefni með dýrum í útrýmingarhættu
-
verkefni með götubörnum eða heimilislausum börnum
-
enskukennsla eða vinna með fötluðum
-
forvarnarstarf vegna HIV/AIDS eða heilsutengd verkefni
-
þjálfa börn í fótbolta eða öðrum íþróttum
-
læra afríkanskan vefnað eða keramíkgerð
-
læra afríkanska matargerð eða fara á Swahili tungumálanámskeið
Lönd og verkefni í boði, er að finna hér. Þessi verkefni eru í:
-
Austurríki
-
Bólivíu
- Columbíu
-
Gana
-
Indlandi
- Indónesíu
- Ítalíu
-
Kenýa
-
Kína
-
Marokkó
-
Moldóvíu
-
Mósambík
-
Nepal
-
Nígeríu
- Perú
- Rússlandi
- Tanzaníu
-
Úganda
-
Víetnam
Við sendum einnig til systrasamtaka okkar í nokkrum öðrum löndum:
- Ekvador: Ýmis verkefni í boði allt árið um kring. Sjá frekari upplýsingar hér.
- Kosta Ríka: Ýmis verkefni í boði allt árið um kring. Sjá verkefni hér.
- Mexíkó: Verkefni sem eru 4 vikur í senn, og á ákveðnum dagsetningum. Sjá frekari upplýsingar hér.
Upplýsingar um frekari upplýsingar um verkefni í þessum löndum fá finna með því að hafa samband v ið skrifstofuna eða hér á heimasíðu ICYE alþjóðasamtakana.
Af og til sendum við út tölvupóst um ný og spennandi verkefni, laus verkefni eða mikilvægar tilkynningar. Ef þú vilt vera á póstlista AUS, skráðu þig þá á forsíðunni (efst í hægra horninu) eða sendu tölvupóst til skrifstofu AUS þar sem óskað er eftir því að vera á póstlistanum.
Upplýsingar um þátttökugjöld er að finna hér.
Umsóknarferilinn
Hvað þarf að gera?
- Fyrsta skrefið er að fylla út umsókn á ensku sem má sækja hér.
Þeir sem hafa áhuga á að fara til landa utan Evrópu þurfa að huga að ýmsum atriðum:
- bólusetningum
- almennri læknisskoðun
- vegabréfsáritunum
- tryggingum
Fyrirvarinn þarf í raun ekki að vera mikill. Skrifstofa AUS getur yfirleitt gefið svar á einni viku, hvort umsótt verkefni sé laust og hvort systrasamtök okkar séu tilbúin að taka á móti þér. Ef þú ert með allar nauðsynlegar bólusetningar, þarft ekki að sækja um vegabréfsáritun fyrir brottför og ert með hagstætt fargjald, þá er í raun möguleiki á því að fara út ca. einum mánuði eftir að sótt hefur verið um.



