
-
lengri verkefni í 6 eða 12 mánuði
-
brottför í ágúst og janúar/febrúar á hverju ári
-
tungumálanámskeið innifalið
Verkefnin í boði eru margvísleg, s.s.:
-
verkefni með götubörnum eða heimilislausum börnum
-
enskukennsla eða vinna með fötluðum
-
forvarnarstarf vegna HIV/AIDS eða heilsutengd verkefni
-
náttúruverkefni eða íþrótta-tengd verkefni
-
með öldruðum eða með hópum til að styrkja stöðu kvenna
-
verkefni með innfæddum (ættbálkum) eða með mannréttindahópum eða...
Margir ferðast um landið eða til nálægra landa á meðan dvöl stendur (í fríinu sem þeir eiga) eða eftir að verkefni lýkur. Slappa af á fallegri strönd, klifra fjöll eða berjast í gegnum regnskóga, fara í safarí, taka þátt í menningarhátíðum, skoða sig um á bakpokaferðalagi eða gera eitthvað allt annað....
Upplýsingar um þátttökugjöld má finna hér.
Þegar við sendum sjálfboðaliða í verkefni utan Evrópu erum við alltaf að senda til systrasamtaka okkar innan ICYE heimsins sem hafa margra ára reynslu af því að skipuleggja slík verkefni. AUS- ICYE Iceland býður uppá verkefni í öllum heimsálfum. Hér á heimasíðu alþjóðasamtakanna má sjá hluta þeirra verkefna sem í boði eru. Athugaðu að þetta er ekki tæmandi listi en hann gefur ágætis mynd af þeim verkefnum sem i boði eru. Nýjustu upplýsingar um áfangastaðina/löndin og verkefnin þar er að finna með því að velja land á heimskortinu eða í gegnum ráðgjafann sem getur beint þér á réttan stað.
Af og til sendum við út tölvupóst um ný og spennandi verkefni, laus verkefni eða mikilvægar tilkynningar. Ef þú vilt vera á póstlista AUS, skráðu þig þá á forsíðunni (efst í hægra horninu) eða sendu tölvupóst til skrifstofu AUS þar sem óskað er eftir því að vera á póstlistanum.
Umsóknarferilinn
- Fyrsta skrefið er að fylla út umsókn á ensku á netinu sem er gert hér.
- Fá staðfestingu frá skrifstofu og koma í viðtal.
- Fylla út ýtarlegri umsókn sem má sækja hér á ensku.
- Þátttökugjöld.
Einnig þarf að koma eftirfarandi gögnum (á ensku) á skrifstofu AUS:
-
Fylgibréf (Motivation letter) þar sem fram koma ástæður þess að vikomandi sækir um sem sjálfboðaliði, hvað umsækjandi telur sig hafa fram að færa sem geti nýst við sjálfboðaliðaverkefni, hver áhugamálin eru o.s.frv. Bréfið skal vera ½ -1 blaðsíða. Dæmi um hvernig er hægt að setja upp fylgibréf má finna hér og hér.
-
Ljósrit af vegabréfi.
-
Passamyndir. Fjórar eins passamyndir.
Þeir sem hafa áhuga á að fara til landa utan Evrópu þurfa að huga að ýmsum atriðum eins og bólusetningum, almennri læknisskoðun, vegabréfsáritunum og tryggingum. Ýmsar gagnlegar upplýsingar er að finna hér en skrifstofa AUS aðstoðar utanfara og gefur nauðsynlegar upplýsingar um hvert skal leita.






