Á krepputímum eins og við lifum í dag finnst mörgum einstaklingum eflaust að þeir eigi nóg með sjálfa sig og sína og séu þ.a.l. ekki aflögufærir.
Sem samfélag erum við að draga úr þróunarhjálp auk þess sem velferðarkerfið er skorið niður. Þá sýna tölur að fjöldi þeirra sem leita til hjálparsamtaka innanlands hefur margfaldast.
Við slíkar aðstæður verður spurningin: „Af hverju ættum við að hjálpa öðrum,“ kannski enn mikilvægari en hún er að öllu jöfnu
Á málstofu Múltikúlti, fimmtudaginn 25. júní, kl. 20.00, verður velt upp ýmsum hliðum spurningarinnar og mismunandi svör skoðuð og kynnt. Eftir stuttar framsögur verða almennar umræður.
Framsögu flytja:
Ármann Gunnarsson, djákni
Sigríður Víðis Jónsdóttir, blaðamaður
Kjartan Jónsson, þýðandi
Deepa Iyengar – Tsewang Nangyal, frá Vinum Tíbet
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir
Málstofa Múltikúlti haldin í kjallara Alþjóðahúss, Laugavegi 37 (gengið inn bakatil)






