AUS - Alþjóðleg ungmennaskipti

 

2-16 vikur utan evrópu

There's no translation available for this item. Try a different one               Verkefnin í boði eru margvísleg s.s.: náttúruverkefni eða verkefni með dýrum í útrýmingarhættu verkefni með götubörnum eða heimilislausum börnum enskukennsla eða vinna með fötluðum forvarnarstarf vegna HIV/AIDS eða heilsutengd verkefni þjálfa börn í fótbolta eða öðrum íþróttum læra afríkanskan vefnað eða keramíkgerð læra afríkanska matargerð eða fara á Swahili tungumálanámskeið Verkefni í 2-16 vikur eru styttri verkefni, svokölluð ICYE STEPS verkefni. Hægt er að leggja af stað hvenær sem er yfir árið og oft er hægt að taka tungumálanámskeið samhliða sjálfboðastarfinu. Verkefnin eru skipulögð af systrasamtökum okkar innan AUS/ICYE heimsins sem hafa margra ára reynslu af því að skipuleggja slík verkefni. Margir dvelja eitthvað lengur eftir að verkefninu lýkur, ferðast meira um landið eða til nálægra landa, slappa af á fallegri strönd, klifra fjöll eða berjast í gegnum regnskóga, fara í safarí, taka þátt í menningarhátíðum, skoða sig um á bakpokaferðalagi eða gera eitthvað allt annað.... Einnig er mögulegt að leggja af stað og dvelja í landinu áður en verkefni hefst. Lönd og verkefni í boði, er að finna hér. Þessi verkefni eru í: Austurríki Bólivíu Columbíu Gana Indlandi Indónesíu Ítalíu Kenýa Kína Marokkó Moldóvíu Mósambík Nepal Nígeríu Perú Rússlandi Tanzaníu Úganda Víetnam Við sendum einnig til systrasamtaka okkar í nokkrum öðrum löndum: - Ekvador: Ýmis verkefni í boði allt árið um kring. Sjá frekari upplýsingar hér. - Kosta Ríka: Ýmis verkefni í boði allt árið um kring. Sjá verkefni hér. - Mexíkó: Verkefni sem eru 4 vikur í senn, og á ákveðnum dagsetningum. Sjá frekari upplýsingar hér. Upplýsingar um frekari upplýsingar um verkefni í þessum löndum fá finna með því að hafa samband v ið skrifstofuna eða  hér á heimasíðu ICYE alþjóðasamtakana. Af og til sendum við út tölvupóst um ný og spennandi verkefni, laus verkefni eða mikilvægar tilkynningar. Ef þú vilt vera á póstlista AUS, skráðu þig þá á forsíðunni (efst í hægra horninu) eða sendu tölvupóst til skrifstofu AUS þar sem óskað er eftir því að vera á póstlistanum. Upplýsingar um þátttökugjöld er að finna hér. Umsóknarferilinn Hvað þarf að gera? Fyrsta skrefið er að fylla út  umsókn á ensku sem má sækja hér. Við höfum svo samband við þig með frekari upplýsingum. Þeir sem hafa áhuga á að fara til landa utan Evrópu þurfa að huga að ýmsum atriðum: bólusetningum almennri læknisskoðun vegabréfsáritunum tryggingum Ýmsar gagnlegar upplýsingar er að finna hér en skrifstofa AUS aðstoðar utanfara og gefur nauðsynlegar upplýsingar um hvert skal leita. Fyrirvarinn þarf í raun ekki að vera mikill. Skrifstofa AUS getur yfirleitt gefið svar á einni viku, hvort umsótt verkefni sé laust og hvort systrasamtök okkar séu tilbúin að taka á móti þér. Ef þú ert með allar nauðsynlegar bólusetningar, þarft ekki að sækja um vegabréfsáritun fyrir brottför og ert með hagstætt fargjald, þá er í raun möguleiki á því að fara út ca. einum mánuði eftir að sótt hefur verið um.

 

6/12 mánuðir utan Evrópu

There's no translation available for this item. Try a different one lengri verkefni í 6 eða 12 mánuði brottför í ágúst og janúar/febrúar á hverju ári tungumálanámskeið innifalið Verkefnin í boði eru margvísleg, s.s.: verkefni með götubörnum eða heimilislausum börnum enskukennsla eða vinna með fötluðum forvarnarstarf vegna HIV/AIDS eða heilsutengd verkefni náttúruverkefni eða íþrótta-tengd verkefni með öldruðum eða með hópum til að styrkja stöðu kvenna verkefni með innfæddum (ættbálkum) eða með mannréttindahópum eða... Margir ferðast um landið eða til nálægra landa á meðan dvöl stendur (í fríinu sem þeir eiga) eða eftir að verkefni lýkur. Slappa af á fallegri strönd, klifra fjöll eða berjast í gegnum regnskóga, fara í safarí, taka þátt í menningarhátíðum, skoða sig um á bakpokaferðalagi eða gera eitthvað allt annað.... Upplýsingar um þátttökugjöld má finna hér. Þegar við sendum sjálfboðaliða í verkefni utan Evrópu erum við alltaf að senda til systrasamtaka okkar innan ICYE heimsins sem hafa margra ára reynslu af því að skipuleggja slík verkefni. AUS- ICYE Iceland býður uppá verkefni í öllum heimsálfum. Hér á heimasíðu alþjóðasamtakanna má sjá hluta þeirra verkefna sem í boði eru. Athugaðu að þetta er ekki tæmandi listi en hann gefur ágætis mynd af þeim verkefnum sem i boði eru. Nýjustu upplýsingar um áfangastaðina/löndin og verkefnin þar er að finna með því að velja land á heimskortinu eða í gegnum ráðgjafann sem getur beint þér á réttan stað. Af og til sendum við út tölvupóst um ný og spennandi verkefni, laus verkefni eða mikilvægar tilkynningar. Ef þú vilt vera á póstlista AUS, skráðu þig þá á forsíðunni (efst í hægra horninu) eða sendu tölvupóst til skrifstofu AUS þar sem óskað er eftir því að vera á póstlistanum. Umsóknarferilinn Fyrsta skrefið er að fylla út  umsókn á ensku á netinu sem er gert hér. Fá staðfestingu frá skrifstofu og koma í viðtal. Fylla út  ýtarlegri umsókn sem má sækja hér á ensku. Þátttökugjöld. Einnig þarf að koma eftirfarandi gögnum (á ensku) á skrifstofu AUS: Ferilskrá (CV) þar sem tekið er fram menntun, fyrri störf og reynsla sem getur nýst viðkomandi. Dæmi um hvernig er hægt að setja upp ferilskrá má finna hér og hér. Fylgibréf (Motivation letter) þar sem fram koma ástæður þess að vikomandi sækir um sem sjálfboðaliði, hvað umsækjandi telur sig hafa fram að færa sem geti nýst við sjálfboðaliðaverkefni, hver áhugamálin eru o.s.frv. Bréfið skal vera ½ -1 blaðsíða. Dæmi um hvernig er hægt að setja upp fylgibréf má finna hér og hér. Heilbrigðisvottorð, tvö eyðublöð. Annað fyllist út umsækjanda, en hitt skal læknir fylla út. Gætið þess að læknirinn skrifi undir og stimpli vottorðið. Bæði vottorðin má finna hér: skjal 1 og skjal 2. Ljósrit af vegabréfi. Passamyndir. Fjórar eins passamyndir. Þeir sem hafa áhuga á að fara til landa utan Evrópu þurfa að huga að ýmsum atriðum eins og bólusetningum, almennri læknisskoðun, vegabréfsáritunum og tryggingum. Ýmsar gagnlegar upplýsingar er að finna hér en skrifstofa AUS aðstoðar utanfara og gefur nauðsynlegar upplýsingar um hvert skal leita.

 

4-12 mánuðir í Evrópu

There's no translation available for this item. Try a different one FRÍTT – allt greitt, uppihald, ferðakostnaður, vasapeningur o.fl. Sjálfboðaliðaverkefni í 4 til 12 mánuði (flest verkefni eru í 6, 9 eða 12 mánuði) Verkefni hefjast á ýmsum tímum ársins Tungumálanámskeið innifalið Meira en 1000 verkefni á ýmsum sviðum Gagngrunnur með verkefnum: http://ec.europa.eu/youth/evs/aod /hei_en.cfm Margir ferðast um landið eða til nálægra landa á meðan dvöl stendur (í fríinu sem þeir eiga) eða eftir að verkefni lýkur. Slappa af á fallegri strönd, klifra fjöll, taka þátt í menningarhátíðum, skoða sig um á bakpokaferðalagi svo fátt sé nefnt. Það eru ENGIN þátttökugjöld þegar farið er í verkefni sem styrkt eru af Evrópusambandinu, svokölluð EVS-verkefni (European Voluntary Service). Það er vegna þess að AUS tekur þátt í styrkjaáætlun á vegum Evrópusambandsins sem kallast "Evrópa unga fólksins" eða "Youth in Action Programme". Sjá frekari upplýsingar hér. Af og til sendum við út tölvupóst um ný og spennandi verkefni, laus verkefni eða mikilvægar tilkynningar. Ef þú vilt vera á póstlista AUS, skráðu þig þá á forsíðunni (efst í hægra horninu) eða sendu tölvupóst til skrifstofu AUS þar sem óskað er eftir því að vera á póstlistanum: ICYE@aus.is Umsóknarfrestir Á hverju ári eru 5 umsóknarfrestir sem snúa að samtökunum. Þeir eru eftirfarandi: 1. Febrúar. Er fyrir verkefni sem eiga að hefjast á tímabilinu 1.maí til 30.september 1. Apríl. Er fyrir verkefni sem eiga að hefjst á tímabilinu 1. júlí til 30.nóvember 1. Júní. Er fyrir verkefni sem eiga að hefjast á tímabilinu 1. september til 31.janúar 1. September. Er fyrir verkefni sem eiga að hefjast á tímbilinu 1. desember til 30. apríl 1. Nóvember. Er fyrir verkefni sem eiga að hefjast á tímabilinu 1. febrúar til 31.júlí Þessir umsóknarfrestir eiga við samtökin sem sækja um að fá styrk fyrir verkefni en ekki sjálfboðaliðann. Það getur tekið tíma að vinna úr umsóknum og því miklvægt að senda þær með góðum fyrirvara, oft a.m.k. mánuði fyrr. Því meiri sem fyrirvarinn er, því líklegra er að þú eigir möguleika á því að fá það verkefni sem þú hefur áhuga á. Umsóknarferilinn Þegar sótt er um þarf að byrja á því að fylla inn umsókn á netinu sem er gert hér vitum að þú hafir áhuga að fara í EVS verkefni og getum staðfest það ef móttökusamtökin hafa samband við okkur. Á þessu stigi höfum við ekki samband við þig, en þér er velkomið að hafa samband við okkur ef þú ert með einhverjar spurningar. Það sem þú gerir næst er að fara á gagnagrunnssíðu EVS-áætlunarinnar (eða skoða Evrópukortið) og velja þér verkefni. Þú getur flokkað verkefni eftir landi, þema, lengd og ýmsu öðru. Þegar þú hefur fundið áhugavert verkefni, skaltu hafa samband við ábyrgðaraðila þess til þess að athuga hvort verkefnið sé laust. Þar skal koma fram númer og heiti verkefnisins, hvenær þú getur hafið sjálfboðastarfið og hversu lengi þú getur verið í verkefninu. Einnig þarf að taka fram að AUS- ICYE Iceland séu sendisamtökin. Lengd verkefna kemur yfirleitt fram í verkefnalýsingu og þar kemur einnig fram netfang og sá kontaktaðili sem þú átt að hafa samband við. Ásamt þessum upplýsingum skal senda eftirfarandi skjöl (á ensku!): Umsóknareyðublað útfyllt ( sem má nálgast hér). Ferilskrá (CV) þar sem tekið er fram menntun, fyrri störf og reynsla sem getur nýst viðkomandi. Dæmi um hvernig er hægt að setja upp ferilskrá má finna hér og hér. Fylgibréf (Motivation letter) þar sem fram koma ástæður þess að vikomandi sækir um sem sjálfboðaliði, hvaðumsækjandi telur sig hafa fram að færa sem geti nýst við sjálfboðaliðastörf, hver áhugamálin eru o.s.frv. Bréfið skal vera ½ -1 blaðsíða. Dæmi um hvernig er hægt að setja uppfylgibréf má finna hér og hér. Gagnagrunnur Evrópu áætlunarinnar Hér má finna verkefni evrópuáætlunarinnar. Athugið að það er mikilvægt að vanda vel til þeirra gagna sem send eru til mótttökusamtakanna því margir sækjast eftir því að komast í EVS verkefni, og því mikilvægt að umsóknin sé vel úr garði gerð. Einnig borgar sig að velja nokkur verkefni, 10 eða fleiri, þar sem fleiri umsóknir auka líkurnar á því að fá jákvætt svar, alla vegana frá einum móttökusamtökum. Einnig skaltu senda tölvupóst til skrifstofu AUS (aus@aus.is) með lista yfir þau verkefni sem þú hefur sótt um svo við getum fylgst með framvindunni og vitum hvað er að gerast ef móttökusamtök hafa samband við okkur beint. Með þeim lista skal fylgja umsóknareyðublaðið, ferilskráin og fylgibréfið. Ef móttökusamtökin gefa jákvætt svar, skaltu láta skrifstofu AUS vita og við hefjum umsóknarferlið og fylgjum umsókninni eftir. Þegar umsóknin hefur verið tekin gild og staðfest er boðað til viðtals á skrifstofu AUS þar sem farið er yfir næstu skref og boðið uppá fyrirspurnir. Fyrir brottför þurfa allir að mæta á undirbúningsráðstefnu sem "Evrópa unga fólksins" heldur.

AUS Projects

E-mail Print PDF
We receive volunteers every year at the beginning of March and in the middle of September. ALL the projects are, as indicated in table here below, for either 6 and/or 12 months. We do not have projects that start at other time, nor projects for shorter or longer period. You can click the name of the project to get a detailed project description. You can also see which projects have available places, and how many volunteers each project is hosting.
The next arrival dates are 4-5th of March 2009 and 16-17th September 2009  (for both 6 and 12 months projects).
The application deadline for volunteers wishing to commence in March, is 1st October (then we apply on 1st November deadline), whilst the application deadline for volunteers wishing to commence in September, is 1st March (then we will apply on the 1st April deadline).

Name (EI Ref)

Description

Available

Duration

Project website

(2008-ISL-9)

People with disabilities

2

12 months

Ásgarður in Reykjavik area

(2008-ISL-13)

People with disabilities

3

12 months

(2008-ISL-15)

People with mental ilness

1

6/12 months

Klúbburinn Geysir in Reykjavik

(2008-ISL-14)

People with mental ilness

3

6/12 months

The Red Cross in Iceland

(2008-ISL-17)
Older people

2

6/12 months

Grund in Reykjavik

(2008-ISL-16)

Anti-drugs cafeteria

2

6 months

Samhjálp in Reykjavík

(2008-ISL-12)

Anti-drugs & poor

2

6/12 months

Salvation Army in Reykjavík

(2008-ISL-10)

Kindergarten & school

2

12 months

Waldorf School in Reykjavík

(2008-ISL-11)
Health clinic & youth centre

2

6/12 months

NLFÍ in Hveragerði

Application deadlines:
The sooner YOU apply, the more likely you get the project you want.
1) For projects starting in September:

 

Deadline to AUS
Reply from AUS*
Deadline to NA**
Formal reply from NA***
1st of January
8th of January
1st of February
1st of Feb – 14th of March
1st of March
8th of March
1st of April
1st of Apr – 14th of June
1st of May
8th of May
1st of June
1st of June – 14th of July

 

2) For projects starting in March:

 

Deadline to AUS
Reply from AUS*
Deadline to NA**
Formal reply from NA***
1st of August
8th of August
1st of September
1st of Sept – 14th of Okt
1st of Oktober
8th of Oktober
1st of November
1st of Nov – 14th of Dec

 

* After the application deadline has passed, we go through the applications and select participants. When selecting participants we have in consideration thebalance of genders,age and countries. We do not necessarily fill all the available projects at first chance.
** After participants have been selected,there are 2 weeks to finish all paperwork and send an application to the National Agency (NA). This includes formal signatures from the participant and sending organisation.
*** It might take up to 6 weeks to get a formal answer from the the National Agency. When we have the answer we will inform both you and your sending organisation.

Digg    Facebook   
 
Icelandic(IS)English (United Kingdom)

Úr myndasafni

Könnun

Hvar heyrðir þú af AUS...

  • 31.2%
  • 28.7%
  • 22.3%
  • 9.9%
  • 6.8%
Please wait...