Posts

Mósambík

Mósambík er stórt land í suðaustanverðri Afríku með landamæri að Suður-Afríku, Svasílandi, Tansaníu, Malaví, Sambíu og Simbabve. Alls búa um 24-25 milljónir íbúa í landinu.

Höfuðborgin Mapútó er staðsett syðst í landinu og þar búa tæplega tvær milljónir manna. Borgin var kölluð „Perla Afríku“ á nýlendutímanum og ef vel er að gáð má finna margt sem minnir á þá tíma.

Í norður- og miðhéruðum Mósambík er hitabeltisloftslag en í suðurhéruðunum er loftslagið heittemprað. Þrátt fyrir breytileika í veðurfari eru tvær árstíðir einkennandi fyrir allt landið. Regntíminn, en þá er heitt, byrjar í október og honum lýkur í mars. Þurrkatíminn er kaldari og nær hann frá apríl til september. Heitast er í norðurhluta landsins á regntímanum en þá nær hitinn að jafnaði allt að 45 °C að degi til.

Þjóðfélag Mósambík er einstök blanda af afrískum, arabískum, indverskum og portúgölskum áhrifum, – maturinn er kryddaðri, tónlistin jazzaðri og takturinn almennt afslappaðri en hjá enskumælandi nágrönnum landsins s.s Malaví og Swasilands. Mikill munur er á menningu nyrst og syðst í Mósambík, í nyrðstu eru arabísk áhrif áberandi og syðst portúgölsk. Til sveita er mikið dansað og sungið. Marrabenta er vinsæll dans sem er ríkjandi í suðurhluta Mósambík, en þar kemur saman hefðbundin Mósambískur dans og Portúgölsk tónlist.

Mósambíkar eru að mörgu leyti líkir Íslendingum. Þeir hafa svipaða kímnigáfu, gera gjarnan gys að sjálfum sér og hlæja mikið. Þeir eru yfirleitt glaðlegir og elskulegir og er eftirtektarvert að þeir bjóða gjarnan góðan dag þegar þeir mæta fólki á götu.

Í Mósambík eru töluð um 20 tungumál. Flestir tala mál sem tilheyra málaflokknum sínum. Opinbera tungumálið í Mósambík er Portúglaska.

Hvernig fer ég þangað:
Sjálfboðaliðastörf í Mósambík með AUS eru í boði í gegnum Steps og Long term verkefnin.
• Steps verkefnin eru í boði í 2 til 16 vikur og hefjast flest alla mánudaga.
• Lengri tíma verkefnin eru í boði í 6 eða 12 mánuði og er brottför í janúar og ágúst á ári hverju.

Verkefni:

Lengri tíma verkefni:
• Stuðningsverkefni fyrir fólk sem þjáist af HIV
• Forvarnaverkefni gegn HIV og eiturlyfjum
• Nokkur barnaskýli fyrir börn á aldrinum 0-18 ára sem búa við erfiðar aðstæður
• Barnaafhvarf þar sem sjálfboðaliðar vinna með börnum við ýmiskonar frístundir.
• Listasetur fyrir ung börn til að læra og njóta þess að skapa
• Skóli fyrir börn sem búa á götunni og munaðarleysingja.
• Stuðningur fyrir munaðarlaus börn til að undirbúa þau fyrir framtíðina
• Samtök sem vinna að því að gera lýðræðið og ríkisstjórn í landinu skilvirkara
• Heimili fyrir fötluð börn
• Verkefni sem berjast fyrir ýmsum mannréttindum, uppbyggingu samfélaga og heilbrigðismálum

Styttri tíma verkefni:
• Nokkur barnaskýli fyrir börn á aldrinum 0-18 ára með það markmið að endurkynna þau inní fjölskyldur  sínar
• Verkefni þar sem börnum er veitt kennsla og heimili.
• Stuðningsheimili fyrir börn sem lifa með HIV
• Heimili fyrir fötluð börn
• Samfélagsverkefni sem vinnur að því að veita fólki ásættanleg lífsskilyrði
• Verkefni sem veitir ungu fólki kennslu og þjálfun í að skapa ýmsa hluti úr viði, stáli og leðri. Markmiðið er að veita þessum krökkum hæfileikana til þess að geta átt vinnu í framtíðinni.

Nánari upplýsingar um verkefnin má finna hér: ICYE en einnig með því að senda tölvupóst á icye@aus.is.

Reynslusögur:

Sigrún Magnea fór til Mósambík 2014: Viðtal við Sigrúnu á FM957

Hildur Sólmundsdóttir fór til Mósambík 2016: Bloggið hennar Hildar

Heimasíða samtakanna í landinu:
Heimasíða Ajude samtakanna í Mósambík: AJUDE Mozambique

Suður-Kórea

Lýðveldið Suður-Kórea (Taehan Min’guk) er annað tveggja landa á Kóreuskaganum í Asíu. Heildarflatarmál landsins er u.þ.b. 99.274 km² og það nær yfir u.þ.b. 45% Kóreuskagans. Höfuðborg landsins er Seúl (Seoul).

(more…)
Bosnia og Hercegovinia, aus.is

Besta kaffið er í Bosníu…

Það er einkennilegt að líta til baka seinasta hálfa árið og stundum er eins og þetta hafi allt verið draumur.
Read more

Mexíkó

Með landamæri að Bandaríkjunum, Guatemala og Belize liggur land uppfullt af eldfjöllum, pýramídum, dýrum og allskonar fólki. Landslagið í Mexíkó á margt sameiginlegt með því íslenska með miklu hálendi, virkum eldfjöllum, heitum náttúrulaugum og fossum. Þó er margt fleira að finna í jafnstóru landi sem Mexíkó er, en það er u.þ.b. 19 sinnum stærra en Ísland eða 1,972,550 ferkílómetrar.

                Fólkið í Mexíkó er líka aðeins fleira en á Íslandi eða um 125 milljónir. Fólkið er fjölbreytilegt, af ýmsum kynþáttum, býr við mismunandi aðstæður og talar mismunandi tungumál. Spænska er opinbert tungumál í landinu en alls eru töluð 68 tungumál þar (sjá nánar um þetta: https://en.wikipedia.org/wiki/Languages_of_Mexico ). Tungumálin eru komin frá frumbyggjum landsins og mest talaða og frægast þeirra er Náhatl sem kemur frá Aztekunum. Nafnið “Mexíkó” kemur úr Náhatl og er gróflega þýtt á íslensku sem nafli tunglsins.

        Menning landsins er fjölbreytileg og mismunandi milli landsvæða. Þar eru bæði nútímalegar stórborgir sem og strjálbýl landssvæði þar sem fólkið lifir á sjálfsþurftarbúskap. Matarmenningin er fjölbreytileg en inniheldur þó í flestum tilfellum mikið af chilli.

        Þeim sem fara sem sjálfboðaliðar til Mexíkó gefst tækifæri á því að verða hluti af öðrum menningarheimi, læra spænsku og kynnast fólki.

Ambassadors:

Viltu vita meiri upplýsingar um lang og menningu í Mexíkó?

Heiða Vigdís Sigfúsdóttir – Sjálfboðaliði í Mexíkóborg 2012-2013 hjá samtökum fyrir heimilislausa stráka, Pro ninos de la calle.

Heiða segir að fara í sjálfboðastarf til Mexíkó er eins og að sogast inn í ævintýri:  “Í fyrstu var ég bara áhorfandi en fljótt varð ég að þátttakanda sem talaði spænsku, dansaði salsa og borðaði chillí í hvert mál.”  “Á Íslandi hlakkaði ég alltaf til að það kæmi föstudagur en hér í Mexíkó hlakka ég alltaf til mánudags” – Stendur í dagbókinni minni frá því ég var sjálfboðaliði í Mexíkóborg. Í verkefninu Pro ninos de la calle eyddi ég mörgum dögum og vikum að labba um borgina í leit af heimilislausum strákum og kynntist hverjum krók og kima af borginni. Á föstudögum fórum við svo í vettvangsferðir á söfn eða í sundlaugagarði svo dæmi séu nefnd.

Myndband frá Heiðu:

Björk Sigurðardóttir – Sjálfboðaliði í Ocotlán, Jalisco 2013-2014 í leikskólanum Jardin de Ninos Joaquin Figueroa.

“21 árs frá Ísafirði. Fór út því ég vildi upplifa eitthvað nýtt og spennandi og var ekki tilbúin að fara í háskóla strax eftir menntaskóla.”

Í september á hverju ári eru svokölluð “fiestas” í bænum sem ég bjó í, Ocotlán í Jalisco fylki í Mexico. Kvöldið sem þetta myndband er tekið upp er sennilega fyrsta kvöld af 14 í þessum svokölluðu fiestas og eftir að hafa horft á marga klukkutíma skrúðgöngu, leigði vinkona mín banda hljómsveit og við dönsuðum úti á götu fyrir utan heimilið hennar. Svo byrjaði að rigna á fullu, eins og helt væri úr fötu, en við héldum áfram að dansa þrátt fyrir að blotna alveg í gegn! Virklega skemmtilegt kvöld og ekta mexíkóskt! 🙂

Reynslusögur:

Viðtal við Mörtu Mirjam um AUS og reynslu sína í Mexíkó:

„Ég fór út með því hugarfari að bjarga heiminum, en komst fljótlega að því að ég er ekki þess megnug að breyta lífskjörum og menningu þessara barna. Ég var nítján ára gömul þegar ég fór út og mér fannst mjög skrýtið að standa inni á barnaheimilinu, þar sem 60 börn voru vistuð og vera kölluð mamma úr öllum áttum.”

http://bleikt.pressan.is/lesa/50araafmaeliaushvortermikilvaegarapeningaredaast/

Og viðtal við Mörtu:
https://youtu.be/X6Ukf8wfDAs

Dagný bloggaði um dvölina sína í Mexíkó 2015:

“Á sólríkum degi(sem er hver einasti dagur)finnst mér yndislegt að labba í strætó, sem er svo troðfullur að þú ert hálf út eða undir handakrikanum á næsta manni en grínlaust þá finnst mér það æðislegt! Hlusta á mexíkóska banda tónlist í útvarpinu og fylgjast með fólkinu. Ganga svo niður miðbæ Guadalajara, stoppa frá sér freska ávexti á götubás. Halda áfram gegnum markaðinn. Stoppa til að fá sér misheppnaðan dredda. Lenda í spjalli við 65 ára mann á bekknum sem býður þér í mat heim til sín, hann meinar það ekki endilega en það skiptir engu(HANN SKILDI SPÆNSKUNA ÞÍNA VÚHÚ!)! Halda áfram niður götuna, fylgjast með lífinu sem er ó svo yndislega skrautlegt. Dansatriði, leikatriði, heilarar að bjóða þér heilun á götunni. Svo stoppar kona þig og býður þér frían túristagöngutúr og bjór eða safa. Á þeirri leið kynnistu fleira fólki sem býður þér í veislu. Þar kynnistu fleira fólki og lærir meira um mexíkóska menningu. Týpískur laugardagur. Ég dýrka þetta!”

https://dagsvein.wordpress.com/

Heiða Vigdís um dag í lífi sínu í Mexíkó:

Í lestinni var örugglega fleira fólk en í miðbæ Reykjavíkur í gleðigöngunni. Þröngt mega sáttir sitja eða réttara sagt standa í þessu tilfelli, sem kom sér mjög vel þegar lestin snarhamlaði og ég haggaðist ekki.”

http://hitthusid.is/skapadu-aevintyri/

Hólmfríður fór til Mexíkó á vegum AUS:

Hvernig fer ég þangað:
Sjálfboðaliðastörf í Mexíkó með AUS eru í boði í gegnum Steps og Long term verkefnin.

• Steps verkefnin eru í boði í 2 til 16 vikur og hefjast flest alla mánudaga.
• Lengri tíma verkefnin eru í boði í 6 eða 12 mánuði og er brottför í janúar og ágúst á ári hverju

Verkefni:

Í Mexíkó er fjöldinn allur af verkefnum á mismundandi stöðum í landinu. Verkefnin eru samfélagstengd og mörg þeirra tengd börnum. Meira um verkefnin má finna á gagnagrunni ICYE: http://www.icye.org/volunteerwithicye/longterm/?projectdb[view]=project&projectdb[country]=00000010161

Heimasíða samtakanna í landinu:

www.siijuve.org