Úganda er tiltölulega lítið land miðað við önnur lönd í Afríku. Landið er staðsett í austurhluta Afríku og á landamæri við Tanzaníu, Súdan, Congó, Kenya og Rwanda. Í landinu búa um 35 milljónir manns og ríkjandi tungumál er enska, höfuðborg landsins heitir Kampala. Mikið er um náttúrufegurð í Úganda, sem dæmi má nefna Viktoríuvatn og áin Níl sem liggur í gegnum landið en bæði áin og vatnið gefa af sér frjósamt land við bakka þeirra. 
Hvernig fer ég þangað:
Sjálfboðaliðastörf í Úganda með AUS eru í boði í gegnum Steps og Long term verkefnin.
- Steps verkefnin eru í boði í 2 til 16 vikur og hefjast flest alla mánudaga.
 
- Lengri tíma verkefnin eru í boði í 6 eða 12 mánuði og er brottför í janúar og ágúst á ári hverju.
 
Verkefni:
Í Úganda er mikið af verkefnum í boði, meðal annars:
- Á heimili fyrir aldraða
 
- Vinna í grunnskólum og leikskólum
 
- Samfélagsverkefni, reynt að hjálpa fátækum íbúum með heilsufarsvandamál, veita þeim aðgang að námi og sálfræðilega hjálp.
 
- Stuðningsverkefni
 
- Á heilsugæslum
 
- Á munaðarleysingjaheimili
 
- Í skóla fyrir blind og heyrnalaus börn
 
- Í umhverfisverkefni
 
- Á heimili fyrir aldraða með fatlanir
 
- Í samtökum sem veita stuðning fyrir fjölskyldur fólks með HIV/AIDS eða fórnarlömb stríðs
 
- Í samtökum fyrir munaðarlaus börn með HIV eða fórnarlömb stríðs
 
- Í samtökum sem veita stuðning fyrir fátæk börn
 
- Í samtökum fyrir fólk, sérstaklega konur, sem eru smitaðar af HIV
 
- Dýraverkefni í kennslumiðstöð um villt dýr við Viktoríuvatn
 
Nánari upplýsingar um verkefnin má finna á vefsíðu ICYE en einnig með því að senda tölvupóst á icye@aus.is.
Heimasíða samtakanna í landinu:
Úganda Volunteers for Peace/ U.V.P