ÞÁTTTÖKUGJÖLD Í STYTTRI VERKEFNUM

Verkefni til styttri tíma eru á bilinu 2 til 16 vikur

Innifalið í þátttökugjöldum er:
• Undirbúningsfræðsla.
• Fæði og húsnæði.
• Móttaka á flugvelli erlendis.
• Aðgangur að stuðningskerfi og öryggisnet AUS/ICYE.
• Aðstoð við undirbúning ferðarinnar auk aðstoð erlendis s.s. við útvegun vegabréfsáritana ofl.
• Foreldrafræðsla fyrir foreldra sjálfboðaliðans fyrir þá sem það kjósa.
• Heimkomufundur á dvöl lokinni.


Ekki innifalið:
• Læknisvottorð.
• Bólusetningar.
• Ferðakostnaður til og frá  áfangastaðar í dvalarlandi.
• Ferðir á eigin vegum.
• Dvalaleyfi/Vísakostnaður
• Sjúkra- og slysatryggingar.

*ATH: Við getum ekki borið ábyrgð á dvalaleyfi viðkomandi.


Varðandi tryggingar:
Hægt er að kaupa tryggingar í gegnum AUS hjá hinu alþjóðlega tryggingarfélagi Allianz í Berlín (þar sem við tryggjum alla þá sem fara í 6-12 mán. verkefni).
Kostnaðurinn er 15.000 kr. fyrir hvern mánuð.


Varðandi ferðakostnað:
Flug og annar ferðakostnaður er ekki inní þátttökugjöldum þar sem margir sjálfboðaliðar vilja sjálfir sjá um að finna og ganga frá sínu ferðalagi. Einnig er það betra að sjálfboðaliðinn hafi umsjón með þessu ef hann ákveður seinna að breyta sinni ferðaáætlun. Fyrir þá sem kjósa heldur að skrifstofa AUS sjái um að finna og bóka flug til áfangastaðar geta þeir óskað eftir því fyrir greiðslu kr. 14.900, – sem til fellur vegna þeirrar aukalegu vinnu sem það krefst.


ATH!
Þegar pantað er flug, vinsamlegast hafið komudag EKKI um helgi, nema að annað sé sérstaklega tekið fram af AUS skrifstofunni. Eins er gott að “googla” frí og helgidaga í því landi sem þú ætlar að ferðast til. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að þú lendir á dögum þar sem allir eru í lögbundnu fríi. Skrifstofur og verkefni eru oft lokuð um helgar og á lögbundnum frídögum. Eins mælum við með því að lendingartími flugmiðans sé á dagtíma þegar komið er á áfangastað eða á milli 07:00 til 18:00.


Greiðsluskilmálar:
Greiða þarf  25.000 kr. staðfestingargjald þegar undirbúningur ferðarinnar hefst. Heildargreiðsla þarf að hafa borist að fullu mánuði fyrir brottfor.  Hægt er að skipta greiðslunni niður eða greiða allt í einu inná bankareikning AUS. Staðfestingargjald er hluti af  heildar upphæð.

Alþjóðleg ungmennaskipti
Kt. 560884-0369
Rn. 0301-26-204441

Muna að setja nafn og kt. sem skýringu ef borgað er af öðrum reikning og ávallt senda rafræna kvittun á aus@aus.is.


Þáttökugjöld eftir landi

Verð eru ísl. kr.

Land                     4 vikur      Hver auka vika eftir það

Argentína            125.000    25.000

Bólivía                  125.000    25.000

Brasilía                125.000    25.000

Costa Rica           145.000    25.000

Ekvadór               120.000    25.000 

Filipseyjar            125.000    25.000

Ghana                  125.000    25.000

Hondúras            120.000    25.000

Indland                125.000    25.000

Indónesía            125.000    25.000

Ítalía                     160.000   35.000

Japan                    390.000

Kenía                    130.000    25.000

Kólombía             125.000    25.000

Marokkó              125.000    25.000

Mexikó                 125.000    25.000

Mósambík           125.000    25.000

Nepal                   125.000    25.000

Nígería                 125.000    25.000

Perú                     125.000    25.000

 

Spánn                   190000   35.000

Suður-Afríka        150.000    30.000

Tævan                  150.000    30.000

Tansanía              125.000    30.000

Úganda                125.000    25.000

Víetnam               125.000    25.000