Indónesía er ríki í Suð-Austur Asíu og samanstendur af um það bil 14 þúsund eyjum en búið er á um það bil 6000 af þeim eyjum. Ríkið er stærsta eyríki í heimi og stærir sig af 4 mesta íbúafjölda í heimi. Höfuðborgin Jakarta er á eyjunni Java en líklegast er Balí þekktasta eyjan í Indónesíu. Menningin er mjög fjölbreytt og mismunandi eftir eyjum, enda gríðarlegur fólksfjöldi sem býr í Indónesíu og um 300 menningarhópar. Menningin er undir áhrifum frá Evrópu, Asíu og Arabískum löndum en vinsælar íþróttir eru fótbolti og badminton. Grunnurinn í matnum er oft hrísgrjón með grænmeti, kjöti, fisk eða kjúkling, maturinn oft nokkuð vel kryddaður. Hvernig fer ég þangað: Verkefni í Indónesíu eru bæði í boði í Long Term og Steps verkefnum Verkefni: Reynslusögur: Halla bloggaði um ævintýrið sitt í Indónesíu 2015: Halla í Indó Heimasíða samtakanna í landinu: Dejavato foundation: www.dejavato.or.id/