Suður-Afríka er syðsta landið í Afríku. Landið liggur að suðurhluta Atlantshafsins og Indlandshafi og á landamæri að Namibíu, Botswana og Zimbabwe í norði og Mósambík og Svasílandi í suðri. Einnig er konungsríkið Lesotho, landlukt land í miðri Suður-Afríku. Menning landsins er nokkuð fjölbreytt enda er þjóð landsins að fjölbreyttum uppruna (multi-ethnic). Í landinu eru 11 opinber tungumál en enska er þó útbreiddasta tungumálið. Mikill stöðugleiki hefur ríkt í stjórnmálum seinustu árin miðað við önnur Afríkuríki. Nelson Mandela heitin, fyrrverandi forseti og baráttumaður gegn aðskilnaðarstefnunni, er líklegast þekktasti Suður-Afríkubúinn. Höfðaborg og Jóhannesarborg eru þekktustu borgirnar. Hvernig fer ég þangað: Sjálfboðaliðastörf í Suður-Afríku með AUS eru í boði í gegnum Steps og Long term verkefnin. Steps verkefnin eru í boði í 2 til 16 vikur og hefjast flest alla mánudaga. Lengri tíma verkefnin eru í boði í 6 eða 12 mánuði og er brottför í janúar og ágúst á ári hverju Nánari upplýsingar um verkefnin má finna á vefsíðu ICYE en einnig með því að senda tölvupóst á icye@aus.is. Heimasíða samtakanna í landinu: