ÞÁTTTÖKUGJÖLD Í STYTTRI VERKEFNUM
Verkefni til styttri tíma eru á bilinu 2 til 16 vikur
Innifalið í þátttökugjöldum er:
• Undirbúningsfræðsla.
• Fæði og húsnæði.
• Móttaka á flugvelli erlendis.
• Aðgangur að stuðningskerfi og öryggisnet AUS/ICYE.
• Aðstoð við undirbúning ferðarinnar auk aðstoð erlendis s.s. við útvegun vegabréfsáritana ofl.
• Foreldrafræðsla fyrir foreldra sjálfboðaliðans fyrir þá sem það kjósa.
• Heimkomufundur á dvöl lokinni.
Ekki innifalið:
• Læknisvottorð.
• Bólusetningar.
• Ferðakostnaður til og frá áfangastaðar í dvalarlandi.
• Ferðir á eigin vegum.
• Dvalaleyfi/Vísakostnaður
• Sjúkra- og slysatryggingar.
*ATH: Við getum ekki borið ábyrgð á dvalaleyfi viðkomandi.
Varðandi tryggingar:
Hægt er að kaupa tryggingar í gegnum AUS hjá hinu alþjóðlega tryggingarfélagi Allianz í Berlín (þar sem við tryggjum alla þá sem fara í 6-12 mán. verkefni).
Kostnaðurinn er 15.000 kr. fyrir hvern mánuð.
Varðandi ferðakostnað:
Flug og annar ferðakostnaður er ekki inní þátttökugjöldum þar sem margir sjálfboðaliðar vilja sjálfir sjá um að finna og ganga frá sínu ferðalagi. Einnig er það betra að sjálfboðaliðinn hafi umsjón með þessu ef hann ákveður seinna að breyta sinni ferðaáætlun. Fyrir þá sem kjósa heldur að skrifstofa AUS sjái um að finna og bóka flug til áfangastaðar geta þeir óskað eftir því fyrir greiðslu kr. 14.900, – sem til fellur vegna þeirrar aukalegu vinnu sem það krefst.
ATH!
Þegar pantað er flug, vinsamlegast hafið komudag EKKI um helgi, nema að annað sé sérstaklega tekið fram af AUS skrifstofunni. Eins er gott að “googla” frí og helgidaga í því landi sem þú ætlar að ferðast til. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að þú lendir á dögum þar sem allir eru í lögbundnu fríi. Skrifstofur og verkefni eru oft lokuð um helgar og á lögbundnum frídögum. Eins mælum við með því að lendingartími flugmiðans sé á dagtíma þegar komið er á áfangastað eða á milli 07:00 til 18:00.
Greiðsluskilmálar:
Greiða þarf 25.000 kr. staðfestingargjald þegar undirbúningur ferðarinnar hefst. Heildargreiðsla þarf að hafa borist að fullu mánuði fyrir brottfor. Hægt er að skipta greiðslunni niður eða greiða allt í einu inná bankareikning AUS. Staðfestingargjald er hluti af heildar upphæð.
Alþjóðleg ungmennaskipti
Kt. 560884-0369
Rn. 0301-26-204441
Muna að setja nafn og kt. sem skýringu ef borgað er af öðrum reikning og ávallt senda rafræna kvittun á aus@aus.is.
Þáttökugjöld eftir landi
Verð eru ísl. kr.
Land 4 vikur Hver auka vika eftir það
Argentína 125.000 25.000
Bólivía 125.000 25.000
Brasilía 125.000 25.000
Costa Rica 145.000 25.000
Ekvadór 120.000 25.000
Filipseyjar 125.000 25.000
Ghana 125.000 25.000
Hondúras 120.000 25.000
Indland 125.000 25.000
Indónesía 125.000 25.000
Ítalía 160.000 35.000
Japan 390.000
Kenía 130.000 25.000
Kólombía 125.000 25.000
Marokkó 125.000 25.000
Mexikó 125.000 25.000
Mósambík 125.000 25.000
Nepal 125.000 25.000
Nígería 125.000 25.000
Perú 125.000 25.000
Spánn 190000 35.000
Suður-Afríka 150.000 30.000
Tævan 150.000 30.000
Tansanía 125.000 30.000
Úganda 125.000 25.000
Víetnam 125.000 25.000