Marokkó er ríki í Norður-Afríku norðvestanverðri handan Njörvasunds, 710.850 km² að flatarmáli að Vestur-Sahara meðtöldu (252.120 km²). Handan landamæranna í austri og suðaustri er Alsír, Vestur-Sahara í suðri, Atlantshafið í vestri og Miðjarðarhaf í norðri.
Casablanca er stærsta borgin, aðalhafnarborgin og miðstöð verzlunar og iðnaðar. Rabat, höfuðborgin, er næststærst. Aðrar þekktar borgir eru Fez og Marrakesh. Meirihluti þjóðarinnar eru Múslimar.
Gjaldmiðill er Dirham (1 USD = 10 Dirham) og tungumál er Arabíska en margir tala Frönsku eða Spænsku.
Hvernig fer ég þangað:
Sjálfboðaliðastörf í Marokkó með AUS eru í boði í gegnum Steps og Long term verkefnin.
• Steps verkefnin eru í boði í 2 til 16 vikur og hefjast flest alla mánudaga.
• Lengri tíma verkefnin eru í boði í 6 eða 12 mánuði og er brottför í janúar og ágúst á ári hverju
Verkefni:
Verkefnin hér eru mismunandi og skemmtileg en hérna má finna nokkur viðfangsefni
- Vinna með hreyfihömluðum og þroskaskertum börnum
- Vinna með list og skapandi greinum
- Kennsla fyrir börn frá tekjulágum fjölskyldum
- Vinna með fjölskyldum flóttafólks og flóttafólki
- Íþróttakennsla fyrur börn með færri tækifæri
- Vinna með munaðarlausum börnum
Nánari upplýsingar um verkefnin má finna á vefsíðu ICYE en einnig með því að senda tölvupóst á icye@aus.is
ATH: Sum verkefnanna krefjast einhverrar frönsku-kunnátta.
Þátttökugjöld:
6 eða 12 mánuðir með ICYE Long term.
(Innifalið í þátttökugjaldi er meðal annars matur, húsnæði, tryggingar og vasapeningur á meðan að á dvöl stendur)
Staðfestingargjald er 25.000.- kr. og er hluti af upphæð þátttökugjalda
- 6 mánuðir: 313.000.- kr.
Verð áður 570.000.- kr. - 12 mánuðir 480.000.- kr.
Verð áður 790.000.- kr.
Steps
- Fyrstu fjórar vikurnar 114.000.- kr.
Verð áður 160.000.- kr. - Hver aukavika: 16.000.- kr.
Verð áður 30.000.- kr.
Heimasíða samtakanna í landinu:
Chantiers Sociaux Marocains CSM