Mexíkó
/in land, S-Amerika /by ausadmin2015Með landamæri að Bandaríkjunum, Guatemala og Belize liggur land uppfullt af eldfjöllum, pýramídum, dýrum og allskonar fólki. Landslagið í Mexíkó á margt sameiginlegt með því íslenska með miklu hálendi, virkum eldfjöllum, heitum náttúrulaugum og fossum. Þó er margt fleira að finna í jafnstóru landi sem Mexíkó er, en það er u.þ.b. 19 sinnum stærra en Ísland eða 1,972,550 ferkílómetrar. Fólkið í Mexíkó er líka aðeins fleira en á Íslandi eða um 125 milljónir. Fólkið er fjölbreytilegt, af ýmsum kynþáttum, býr við mismunandi aðstæður og talar mismunandi tungumál. Spænska er opinbert tungumál í landinu en alls eru töluð 68 tungumál þar (sjá nánar um þetta: https://en.wikipedia.org/wiki/Languages_of_Mexico ). Tungumálin eru komin frá frumbyggjum landsins og mest talaða og frægast þeirra er Náhatl sem kemur frá Aztekunum. Nafnið “Mexíkó” kemur úr Náhatl og er gróflega þýtt á íslensku sem nafli tunglsins. Menning landsins er fjölbreytileg og mismunandi milli landsvæða. Þar eru bæði nútímalegar stórborgir sem og strjálbýl landssvæði þar sem fólkið lifir á sjálfsþurftarbúskap. Matarmenningin er fjölbreytileg en inniheldur þó í flestum tilfellum mikið af chilli. Þeim sem fara sem sjálfboðaliðar til Mexíkó gefst tækifæri á því að verða hluti af öðrum menningarheimi, læra spænsku og kynnast fólki. Ambassadors: Viltu vita meiri upplýsingar um lang og menningu í Mexíkó? Heiða Vigdís Sigfúsdóttir – Sjálfboðaliði í Mexíkóborg 2012-2013 hjá samtökum fyrir heimilislausa stráka, Pro ninos de la calle. Heiða segir að fara í sjálfboðastarf til Mexíkó er eins og að sogast inn í ævintýri: “Í fyrstu var ég bara áhorfandi en fljótt varð ég að þátttakanda sem talaði spænsku, dansaði salsa og borðaði chillí í hvert mál.” “Á Íslandi hlakkaði ég alltaf til að það kæmi föstudagur en hér í Mexíkó hlakka ég alltaf til mánudags” – Stendur í dagbókinni minni frá því ég var sjálfboðaliði í Mexíkóborg. Í verkefninu Pro ninos de la calle eyddi ég mörgum dögum og vikum að labba um borgina í leit af heimilislausum strákum og kynntist hverjum krók og kima af borginni. Á föstudögum fórum við svo í vettvangsferðir á söfn eða í sundlaugagarði svo dæmi séu nefnd. Myndband frá Heiðu: Björk Sigurðardóttir – Sjálfboðaliði í Ocotlán, Jalisco 2013-2014 í leikskólanum Jardin de Ninos Joaquin Figueroa. “21 árs frá Ísafirði. Fór út því ég vildi upplifa eitthvað nýtt og spennandi og var ekki tilbúin að fara í háskóla strax eftir menntaskóla.” Í september á hverju ári eru svokölluð “fiestas” í bænum sem ég bjó í, Ocotlán í Jalisco fylki í Mexico. Kvöldið sem þetta myndband er tekið upp er sennilega fyrsta kvöld af 14 í þessum svokölluðu fiestas og eftir að hafa horft á marga klukkutíma skrúðgöngu, leigði vinkona mín banda hljómsveit og við dönsuðum úti á götu fyrir utan heimilið hennar. Svo byrjaði að rigna á fullu, eins og helt væri úr fötu, en við héldum áfram að dansa þrátt fyrir að blotna alveg í gegn! Virklega skemmtilegt kvöld og ekta mexíkóskt! 🙂 Reynslusögur: Viðtal við Mörtu Mirjam um AUS og reynslu sína í Mexíkó: „Ég fór út með því hugarfari að bjarga heiminum, en komst fljótlega að því að ég er ekki þess megnug að breyta lífskjörum og menningu þessara barna. Ég var nítján ára gömul þegar ég fór út og mér fannst mjög skrýtið að standa inni á barnaheimilinu, þar sem 60 börn voru vistuð og vera kölluð mamma úr öllum áttum.” http://bleikt.pressan.is/lesa/50araafmaeliaushvortermikilvaegarapeningaredaast/ Og viðtal við Mörtu: Dagný bloggaði um dvölina sína í Mexíkó 2015: “Á sólríkum degi(sem er hver einasti dagur)finnst mér yndislegt að labba í strætó, sem er svo troðfullur að þú ert hálf út eða undir handakrikanum á næsta manni en grínlaust þá finnst mér það æðislegt! Hlusta á mexíkóska banda tónlist í útvarpinu og fylgjast með fólkinu. Ganga svo niður miðbæ Guadalajara, stoppa frá sér freska ávexti á götubás. Halda áfram gegnum markaðinn. Stoppa til að fá sér misheppnaðan dredda. Lenda í spjalli við 65 ára mann á bekknum sem býður þér í mat heim til sín, hann meinar það ekki endilega en það skiptir engu(HANN SKILDI SPÆNSKUNA ÞÍNA VÚHÚ!)! Halda áfram niður götuna, fylgjast með lífinu sem er ó svo yndislega skrautlegt. Dansatriði, leikatriði, heilarar að bjóða þér heilun á götunni. Svo stoppar kona þig og býður þér frían túristagöngutúr og bjór eða safa. Á þeirri leið kynnistu fleira fólki sem býður þér í veislu. Þar kynnistu fleira fólki og lærir meira um mexíkóska menningu. Týpískur laugardagur. Ég dýrka þetta!” https://dagsvein.wordpress.com/ Heiða Vigdís um dag í lífi sínu í Mexíkó: “Í lestinni var örugglega fleira fólk en í miðbæ Reykjavíkur í gleðigöngunni. Þröngt mega sáttir sitja eða réttara sagt standa í þessu tilfelli, sem kom sér mjög vel þegar lestin snarhamlaði og ég haggaðist ekki.” http://hitthusid.is/skapadu-aevintyri/ Hólmfríður fór til Mexíkó á vegum AUS: Hvernig fer ég þangað: • Steps verkefnin eru í boði í 2 til 16 vikur og hefjast flest alla mánudaga. Verkefni: Í Mexíkó er fjöldinn allur af verkefnum á mismundandi stöðum í landinu. Verkefnin eru samfélagstengd og mörg þeirra tengd börnum. Meira um verkefnin má finna á gagnagrunni ICYE: http://www.icye.org/volunteerwithicye/longterm/?projectdb[view]=project&projectdb[country]=00000010161 Heimasíða samtakanna í landinu:
https://youtu.be/X6Ukf8wfDAs
Sjálfboðaliðastörf í Mexíkó með AUS eru í boði í gegnum Steps og Long term verkefnin.
• Lengri tíma verkefnin eru í boði í 6 eða 12 mánuði og er brottför í janúar og ágúst á ári hverju